one by one

Sláist í hópinn með ungu einhleypu fólki víðs vegar að á Norður-Evrópu svæðinu í Manchester á ráðstefnu okkar One by One.

Um er að ræða þriggja daga samkomu sem er uppfull af trú, vináttu og ógleymanlegri reynslu, sem lýkur með sérstakri trúarsamkomu öldungs Ulisses Soares.


Dagana 29.–31. maí munið þið taka þátt í tilbeiðslu í musterinu, innihaldsríkri þjónustu, upplyftandi lærdómi og innblásinni tónlist, allt hannað til að styrkja tengsl ykkar við Jesú Krist og hvert annað.

Helgin hefst í Preston-musterinu með áherslu á eilífar fjölskyldur, heldur áfram með heilum degi á Burnley-leikvanginum, þar sem boðið verður upp á stórt samfélagsþjónustuverkefni, íþróttir, lifandi tónlist og sérstakan tónlistarflutning, og henni lýkur í Manchester með hvetjandi málstofum og tímamótasamkomu með öldungi Ulisses Soares.

Með andlegum vexti, félagslegum tengslum og eftirminnilegum augnablikum fléttuðu inn í hvern dag, þá er þetta helgi sem þið viljið ekki missa af.


Skráningarupplýsingar

Smellið á hlekkinn hér að neðan til að skrá ykkur og tryggja ykkar pláss á One by One 2026. Plássin munu fyllast fljótt, svo skráið ykkur núna og takið þátt í hvetjandi helgi í Manchester.

Smellið hér til að skrá ykkur á ráðstefnuna One by One 2026

Dagskrá ráðstefnunnar

Föstudagur 29. maí (hefst kl 10:00)

Dagur 1: Sameina fjölskyldur um eilífð
Vettvangur: Preston-musterið og Chorley stikumiðstöðin

Megináhersla:
Musteristilbeiðsla
Koma + boðin velkomin
TIlheyra + tengjast

Laugardagur 30. maí

Dagur 2: Annast hina þurfandi
Vettvangur: Burnley-leikvangurinn

Megináhersla:
Samfélagsverkefni
Félagsstarf + hreyfing
Lifandi tónlist + kvöldverður

Sunnudagur 31. maí

Dagur 3: Lifa eftir fagnaðarerindi Jesú Krists
Vettvangur: Miðborg Manchester

Megináhersla:
Trú + lærdómur
Sérstök samkoma með öldungi Ulisses Soares í Tólfpostulasveitinni
Hvetjandi ræðumenn
Upplífgandi tónlist

Gisting

Gisting fyrir One by One 2026 hefur verið úthugsuð til að tryggja að öllum þátttakendum líði vel alla helgina.

Þátttakendur munu geta gefið til kynna hvort þeir kjósa eins eða tveggja manna herbergi (aðskilin rúm). Ef herbergi er samnýtt, tilgreinið þá vinsamlega 2-3 nöfn til að setja saman í hóp. (Við munum gera okkar besta til að verða við beiðnum, en ráðstöfun er ekki tryggð)

Að senda inn óskir snemma, gefur öllum bestu möguleika á að tryggja sér kjörvalkostinn sinn. Vinsamlega athugið að aðeins verða 1300 pláss í boði þessa helgi.

Verð

  • £ 60 innifela hótelgistingu, mat, rútuferðir meðan á ráðstefnunni stendur, viðburði o.s.frv.
  • Sama verð er fyrir þátttakendur á heimasvæði sem þurfa ekki hótelgistingu.
  • Hafið þið einhverjar frekari spurningar? Vinsamlega skoðið skráningarsíðuna fyrir viðburðinn fyrir frekari upplýsingar.