Hjálparstofnun Síðari daga heilagra, mannúðarsamtök kirkjunnar sem starfa á heimsgrundvelli, hafa á undanförnum þremur árum unnið í samstarfi við Banco Farmaceutico, bæði fjárhagslega og með sjálfboðavinnu, við að sigrast á lyfjafræðilegri fátækt á Ítalíu.
„Við þökkum öllum vinum okkar í Kirkju Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu fyrir alla þá aðstoð sem þeir hafa veitt okkur við að aðstoða fátæka á Ítalíu,“ sagði Sergio Daniotti læknir, forseti Banco Farmaceutico. „Samstarf kirkjunnar og Banco Farmaceutico hefur séð fátækum innflytjendum og flóttamönnum fyrir nauðsynlegum lyfjum.
Mikilvæg lyf hafa verið gefin á hverju ári síðan 2013, þau skráð og þeim dreift. Núna nýlega hafa 420 lyfjaver þjónað sem söfnunarstaðir í landinu, sem séð hafa 125 hjálparstofnunum fyrir nauðsynlegum lyfjum. Fjárframlag kirkjunnar og sjálfboðaliðar aðstoðuðu við útvíkkun þessa verkefnis á landsvísu. Taflan sýnir vöxt verkefnisins með endurheimtun lyfja, verðgildi þeirra og það ár sem þessu lauk,“ segir öldungur Bob Gale, mannúðartrúboði er þjónar á Ítalíu.
„Annan febrúar á hverju ári aðstoðuðu yfir fjögurhundruð sjálfboðaliðar frá kirkjunni, ásamt Banco Farmaceutico, við Lyfjasöfnunardag. Þessi átaksdagur var til viðbótar við viðvarandi söfnunarátak sem stóð allt árið.
Á þessu ári, í efni af 20 ára afmæli stofnunar Banco Farmaceutico, var söfnunarátakið framlengt í heila viku í febrúar. Þátttaka borgaranna var mjög góð,“ tilkynnti Daniotti, læknir. Það er hvetjandi að mörg lyfjafyrirtæki taka áfram þátt í að leggja fram framlög og nú eru birgðir töluvert meiri en undanfarin ár.“
„Þetta verkefni er áþreifanlegt og varanlegt tákn baráttunnar gegn heilsufátækt sem hefur orðið tilfinnanlegri á síðasta áratug. Núverandi kórónufaraldur hefur ekki einungis áhrif á þá sem veikastir eru fyrir, heldur neyðast margir í samfélagi okkar til að spara í heilbrigðismálum,“ segir Filippo Ciantia læknir, framkvæmdastjóri Banco Farmaceutico. „Við erum himinlifandi yfir því að vera þátttakendur í þessu verkefni, að þjóna og uppfylla þarfir annarra, eins og frelsarinn kenndi,“ bætti öldungur Bob Gale við.