Fyrir komandi leiðtogafund aðalráðstefnu (2. apríl 2026), hefur Æðsta forsætisráð Kirkju Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu tilkynnt um fyrirhugaðar breytingar á kennslufyrirkomulagi sunnudaganámsbekkja, til að styðja meðlimi í þeirri viðleitni þeirra að verða lærisveinar Jesú Krists til æviloka. Breytingarnar munu efla trúarfræðslu á heimilum og í söfnuðum um heim allan.
Í janúar 2019 innleiddi kirkjan tveggja klukkustunda sunnudagadagskrá til að veita einstaklingum og fjölskyldum aukin tækifæri til heimilismiðaðs trúarnáms. Meðlimir um allan heim hafa tekið þessum breytingum opnum örmum með trú og eldmóð. Frekari breytingar verða kynntar til að auka enn frekar nám, kristilegt samfélag og tilbeiðslu.
Vikulegir samkomufundir sunnudagaskóla og sveita og námsbekkja
Frá og með 6. september 2026, mun vikulegri dagskrá sunnudagaskóla og sveita eða námsbekkja verða breytt. Í hinni uppfærðu áætlun:
- Samkomufundir sunnudagaskóla, Líknarfélags, öldungasveitar, Stúlknafélags og Aronsprestdæmissveita, verða haldnir í hverri viku.
- Sakramentissamkoma verður áfram 60 mínútur og síðan stuttur skiptitími eftir það.
- Samkomufundir sunnudagaskóla og sveita og bekkja verða hver um sig 25 mínútur.
- Barnafélagið verður áfram á hverjum sunnudegi og verður 55 mínútur, meðan fullorðnir og ungmenni sækja sína viðeigandi námsbekki.
- Þar sem staðbundnar aðstæður krefjast þess, mega einingar byrja á samkomufundum Barnafélags, sveita og námsbekkja og ljúka á sakramentissamkomu.
„Vikulegt nám í hverjum námsbekk stuðlar að dýpra trúarnámi, með því að tengja það betur einkanámi og fjölskyldunámi,“ sagði Paul V. Johnson, aðalforseti sunnudagaskólans. „Það eykur einnig við þann andlega stuðning sem meðlimir fá. Þó að áætlunin líti öðruvísi út er tíminn sem fer í að læra saman sá sami.
Kom, fylg mér – Aðlögun
Allir aldurshópar munu áfram taka þátt í kennslu með Kom, fylg mér sem styður beint við nám heima fyrir. Vikulegir námsbekkir munu bjóða upp á stöðug tækifæri til að læra saman, miðla reynslu og hvetja hvert annað til að lifa eftir reglum fagnaðarerindisins.
Námsbekkir sunnudagaskólans munu áfram nota námsefnið Kom, fylg mér – Fyrir heimili og kirkju.
Námsefni ungmenna: Til styrktar ungmennum
Uppfært rit Til styrktar ungmennum: Leiðarvísir að ákvarðanatökum – sem nú er tiltækt í Gospel Library – hefur að geyma 12 kafla sem tengjast mánaðarlegu námi. Verið er að senda eintök til eininga og leiðtogar heimasvæðis þurfa ekki að panta þau.
Frá og með 6. september 2026, verður þessi leiðarvísir námsefnið fyrir námsbekki Stúlknafélagsins og Aronsprestdæmissveita. Frekara stuðningsefni verður sett fram í tímaritinu Til styrktar ungmennum , frá og með september 2026 útgáfunni.
„Lifandi spámenn hafa gefið okkur TSU leiðarvísinn. Hann er einfaldur en öflugur. Hann mun hjálpa piltum og stúlkum að einblína á Krist, þekkja kenningu hans og hlusta á andann,“ sagði Timothy L. Farnes, aðalforseti Piltafélagsins. „Þessi leiðarvísir mun hjálpa ungmennum að lifa í fullvissu, treysta á kraft hans og sækja fram í von í krefjandi heimi. Mér hefur fundist hann gagnlegur sem hluti af daglegu ritningarnámi mínu.“
Æskilegur árangur ungmenna sem læra þennan leiðarvísi, er sá að þau munu:
- Verða lærisveinar Jesú Krists til æviloka, með staðfastan skilning á fagnaðarerindi hans.
- Vera undirbúin fyrir musterisgjöfina, með dýpri skilningi á helgiathöfnum prestdæmisins og sáttmálsloforðum.
- Vera undirbúin fyrir trúboð, með þrá til að þjóna Drottni.
- Einblína á framtíðarfjölskyldu sína og skilja að hjónaband milli karls og konu er vígt af Guði og að fjölskyldan er kjarninn í áætlun föðurins.
- Vita að Jesús Kristur er styrkur þeirra.
Stúlkur, piltar, foreldrar þeirra og leiðtogar eru hvött til að skrá heimili sitt í áskrift að tímaritinu Til styrktar ungmennumán endurgjalds. Þau sem myndu vilja fá fleiri eintök, geta keypt nýjustu tölublöð tímaritanna á Store.ChurchofJesusChrist.org eða hjá söluaðila. Hægt er að nálgast núverandi og eldri tölublöð rafrænt á ChurchofJesusChrist.org eða í Gospel Library-appinu. Ef meðlimir þurfa aðstoð við áskrift, geta þeir haft samband við tímaritafulltrúa sína eða deildarritara.
Líknarfélag og öldungasveit
Á vikulegum samkomufundum Líknarfélags og öldungasveitar verður áfram lögð áhersla á boðskap frá nýjustu aðalráðstefnu. Þessar umræður leggja áherslu á að skilja spámannlegar kenningar og tileinkun þeirra í daglegu lífi.
„Það felst aukinn styrkur í því að koma saman í hverri viku til að ráðgast saman, læra og styðja hvert annað,“ sagði Camille N. Johnson, aðalforseti Líknarfélagsins. Þegar við komum saman í hans nafni er andinn til staðar til að kenna okkur, vitnisburðir styrkjast og við lyftum hvert öðru sem lærisveinar. Þessi vikulegi tími til að tengjast, mun hjálpa okkur að komast nær frelsaranum og hvert öðru. Við finnum gleði í því að ganga saman sáttmálsveginn.“
Efla tilbeiðslu á sakramentissamkomu
Þótt lengd sakramentissamkomu haldist óbreytt, eru leiðtogar hvattir til að íhuga með ásetningi leiðir til að auka gæði tilbeiðslu og stuðla að því að sakramentissamkoma verði þungamiðjan í lífi Síðari daga heilagra. Meðlimum er boðið að leita þýðingarmikilla leiða til að auðga eigin tilbeiðsluupplifun. Sakramentissamkoma er tími gleði, lotningar og kærkomins samfélags sem hefur frelsarann Jesú Krist að þungamiðju.
Fimmti sunnudagur í ágúst 2026, verður tileinkaður undirbúningi og umræðu ungmenna, foreldra þeirra og leiðtoga. Frekari undirbúningur og umræður fyrir meðlimi, munu eiga sér stað á síðari klukkustundinni, þann 6. september 2026. Úrræði, þjálfunarefni og svör við algengum spurningum verða aðgengileg á næstu vikum.