#LýsiðHeiminum

Dagur 4 - Jesús tilbað föður sinn og það getið þið líka gert

Því að það, sem þér hafið séð mig gjöra, skuluð þér og gjöra.

3. Nefí 27:21

Á jólum erum við minnt á að Jesús Kristur er ljós heimsins. Á þessu ári gefst okkur einstakt tækifæri til að miðla því ljósi með því að einsetja okkur að gera margt af því sem Jesús Kristur gerði. Dag hvern, fram að jólum, munum við leggja áherslu á hina ýmsu kristilegu breytni og koma með tillögur að því hvernig við getum tileinkað okkur fordæmi hans. Þið eruð hvött til að taka þátt með því að nýta ykkur eftirfarandi drögivið að skipuleggja jólaviðburði ykkar.

  • Sækið kirkjuþjónustu á svæði ykkar – þið eruð ætíð velkomin á samkomur okkar.

  • Einsetjið ykkur að krjúpa í bæn til himnesks föður hvern dag í desembermánuði.

  • Hjálpið til við að þrífa eða viðhalda kirkjubyggingu.

  • Ræðið við einhvern um merkingu þess að tilbiðja Guð. Setið ykkur markmið um að bæta ykkur á því sviði.

  • Sækið heim musteri eða helgan stað.


24 aðferðir. Á 24 dögum.

Smellið hér fyrir til að sækja jóladagatalið.