Í ræðu við Brigham Young háskólann (BYU) — hans fyrstu opinberu ræðu sem forseti Kirkju Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu — miðlaði Dallin H. Oaks fjórum leiðum til að komast nær Jesú Kristi.
Í vikulegri trúarræðu háskólans, þriðjudaginn 10. febrúar 2026, lagði Oaks forseti fyrst áherslu á vel þekkta áminningu sem forveri hans, Russell M. Nelson forseti, miðlaði í apríl 2018.
Russell M. Nelson forseti sagði:„Á komandi tíð verður ekki mögulegt að komast af andlega, án þess að njóta stöðugrar handleiðslu, huggunar og áhrifa heilags anda.“
„Ég vil leggja áherslu á [þessa] viðvörun,“ sagði Oaks forseti. „Þið lifið á tíma þar sem óvinurinn hefur náð svo mikum árangri í því að dylja sannleikann að þið munuð láta blekkjast, ef þið hafið ekki heilagan anda. Margar hindranir eru framundan. Truflanirnar verða margar. Jafnvel virkir meðlimir kunna stundum að hafa áhyggjur af einhverjum sögulegum, kenningarlegum eða félagslegum málefnum sem tengjast kirkjunni.“
Til að hjálpa öllum Síðari daga heilögum að „sigrast á efasemdum í nútíð eða framtíð,“ benti spámaðurinn og fyrrum forseti BYU (1971–1980) Oaks forseti, á fjórar einfaldar leiðir sem geta hjálpað þeim að komast nær frelsaranum.
- Styrkjua trú okkar á hann.
- Auka auðmýkt okkar.
- Leita hjálpar annarra.
- Vera þolinmóð.
„Hver sem efinn er, þá er leiðin til að sigrast á honum að komast nær frelsara okkar, Jesú Kristi. Hann hefur ítrekað kennt okkur að hann er vegurinn,“ sagði Oaks forseti.
Styrkja trú okkar
Oaks forseti hvatti Síðari daga heilaga til að þróa trú á Guð og hlutverk sonar hans, Jesú Krists.
„Sterk trú krefst meira en sterkrar þrár,“ sagði hann. „Hún þýðir að reyna daglega, eitt skref í einu, með bæn og ritningarnámi. Við getum aukið skuldbindingu okkar við reglurnar í fyrsta trúaratriðinu.“
Spámaðurinn bætti við: „Þessar reglur tryggja trú okkar á Guð og munu halda okkur fast að sannleika fagnaðarerindisins og fordæmi frelsarans um þjónustu við samferðafólk okkar.“
Auka auðmýkt okkar
Auðmýkt er lykilatriði, kenndi Oaks forseti, vegna þess að „þegar við erum auðmjúk, getum við betur heyrt rödd Drottins.“ Hann sagði líka: „Hugið að þörfum annarra og auðmýkt fylgir í kjölfarið.“
Oaks forseti vitnaði í eldri kenningar Ezra Taft Bensons forseta og Spencer W. Kimball forseta og ræddi um mikilvægi þess að vera námfús og lúta vilja Guðs.
„Auðmýkt er eitt af þeim máttugu boðorðum sem gefin hafa verið okkur til leiðsagnar í okkar jarðneska ferðalagi, sem býr okkur undir tilsettan fund við frelsara okkar og lausnara, Jesú Krist,“ sagði Oaks forseti.
„Gætið þess að verða ekki afvegaleidd,“ bætti hann við.
Þau sem eru óstöðug í trúnni eða hafa farið frá kirkjunni vegna einhvers sem þau hafa heyrt, hvatti Oaks forseti til „auðmýktar, trúar og trausts á Drottin.“
„Þau sem upplifa dvínandi trú og virkni í hinni endurreistu kirkju, eru spámannlegum leiðtogum ykkar mikið áhyggjuefni,“ sagði hann. „Við elskum ykkur, unga sem aldna, karla og konur. Það gerir Drottinn líka! Guð er óþreytandi í kærleiksríkri leit sinni að hverju ykkar. Haldið boðorðin og verið trú sáttmálunum, sem svo mörg ykkar hafið gert, til að leiða ykkur á sáttmálsveginum. Látið aldrei veraldlegan lærdóm takmarka sjóndeildarhring ykkar.“
Leita hjálpar annarra vel upplýstra trúaðra
Til hjálpar til við að sigta út „ótal vangaveltur og rangar upplýsingar í hlaðvörpum og á samfélagsmiðlum,“ hvatti Oaks forseti hina heilögu til að „ræða áhyggjur [sínar] við trúfasta, vel upplýsta vini og koma þeim áhyggjum ætíð á framfæri við Drottin.“
Hann miðlaði síðan reynslu stikuforseta á háskólalóð BYU. Ungur maður sagði þessum staðarleiðtoga að hann væri að yfirgefa kirkjuna.
„Hinn undrandi stikuforseti tók þegar í stað að miðla djúpstæðum vitnisburði sínum um fagnaðarerindið, sem hafði veitt honum svo mikla gleði, frið og innblástur,“ sagði Oaks forseti. „Ungi maðurinn sat agndofa, starði á hann með tárvot augu og sagði: ‚Ég hef ekki heyrt neinn tala þannig í marga mánuði. Ég hef verið að með vinum sem trúa ekki.‘“
Niðurstaðan, sagði spámaðurinn, er sú að „hafa hina trúuðu umhverfis sig.“ Hann hvatti Síðari daga heilagir líka til að sækja vikulegar tilbeiðslusamkomur og hafa í fyrirrúmi að fara reglulega í hús Drottins.
Vera þolinmóð
Að lokum hvatti Oaks forseti fólk til að sýna þolinmæði í andlegri framþróun sinni.
„Að sigrast á vafa – að leysa árekstra milli hins vaxandi skilnings vísinda og hinna stundum ófullnægjandi trúarbragðakenninga, getur verið langt ferli, rétt eins og að byggja upp trú eða öðlast auðmýkt,“ sagði hann.
Í millitíðinni, kenndi spámaðurinn, ættum við að einbeita okkur að öðrum.
„Við ættum að einbeita okkur að þjónustu,“ sagði hann. „Jesús kenndi og sýndi endurtekið áhrifamátt þjónustu við aðra.“