Æðsta stjórnarráð Kirkju Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu er Æðsta forsætisráðið, sem skipað er af forseta og tveimur ráðgjöfum hans. Þetta þriggja manna ráð hefur yfirumsjá með öllu starfi kirkjunnar hvað varðar stefnumál, skipulag og stjórnun.
Tólfpostulasveitin er annað valdamesta stjórnarráð kirkjunnar. Postular þjóna undir leiðsögn Æðsta forsætisráðsins og á þeim hvílir sú mikla stjórnsýsluábyrð að hafa umsjá með framvindu, skipulagi og þróun kirkjunnar um heim allan. Síðari daga heilagir líta á þá sem skipa Æðsta forsætisráðið og Tólfpostulasveitina sem spámenn er hljóta guðlegar opinberanir og innblástur til að leiða kirkjuna.
Útnefning nýs forseta kirkjunnar gerist á venjubundinn hátt – sem er harla óvenjulegt í heimi nútímans – þar sem engin ummerki eru um innri átök eða persónufylgni. Meðlimir líta á þessa framvindu sem guðlega opinberaða, sem er algjörlega laus við kosningar, hvort heldur á bak við tjöldin eða fyrir opnum tjöldum.
Það sem þó er mikilvægara er að þessi framvinda er ekki aðeins háð skipulagi kirkjunnar. Sú fasta hefð hefur myndast í kirkjunni að óviðeigandi er að sækjast persónulega eftir leiðtogastöðu á öllum stjórnarstigum. Þess í stað er einblínt á persónulegan verðugleika og auðmýkt og fúsleika til þjónustu þegar slíkt boð kemur.
Þegar forseti kirkjunnar andast, gerist eftirtalið:
1. Æðsta forsætisráðið leysist sjálfkrafa af.
2. Ráðgjafarnir tveir í Æðsta forsætisráðinu fá að nýju sýna starfsaldursstöðu í Tólspostulasveitinni. Starfsaldur ákvarðast af þeim degi sem einstaklingur var vígður sem einn hinna Tólf, ekki af fæðingardegi.
3. Þegar hér er komið er Tólfpostulasveitin skipuð 14 mönnum og gert er ráð fyrir að sá leiði kirkjuna sem hefur lengstan starfsaldur.
4. Sá sem hefur lengstan starfsaldur er í forsæti fundar Tólfpostulasveitarinnar til að ákveða mögulegar aðgerðir:
i. Ætti að endurskipuleggja Æðsta forsætisráið á þessum tiltekna tíma?
ii Ætti kirkjan að halda áfram að starfa með Tólfpostulasveitina sem æðstu stjórn?
5. Eftir umræður er formleg ákvörðun tekin og samþykkt af Tólfpostulasveitinni.
6. Ef ákvörðun er tekin um að endurskipuleggja Æðsta forsætisráðið, þá velur Tólfpostulasveitin samhljóma hinn nýja forseta kirkjunnar. Hinn nýi forseti velur sér tvo ráðgjafa og þeir þrír verða hið nýja Æðsta forsætisráð. Svo hefur sleitulaust verið í sögu kirkjunnar, að sá postuli sem hefur lengstan starfsaldur verði forseti kirkjunnar þegar Æðsta forsætisráðið hefur verið endurskipulagt.
7. Eftir að Æðsta forsætisráðið hefur verið endurskipulagt, verður sá postuli sem hefur næst lengstan starfsaldur forseti Tólfpostulasveitarinnar. Ef sá sem hefur næst lengstan starfsaldur er líka kallaður í Æðsta forsætisráðið sem ráðgjafi, þá mun sá postuli sem hefur þriðja lengstan starfsaldur verða starfandi forseti Tólfpostulasveitarinnar.
8. Forseti Tólfpostulasveitarinnar, ásamt hinum postulunum, mun setja hinn nýja forseta kirkjunnar í embætti* með formlegri handayfirlagningu.
Allt frá því að kirkjan var formlega stofnuð, 6. apríl 1830, þá hafa forsetar kirkjunnar verið 16 talsins, að meðtöldum Thomas S. Monson.
*Eftir að hafa tekið á móti embættisköllun, eru kirkjumeðlimir „settir í embætti“ til að gegna því embætti. Það er gert samkvæmt biblíulegri aðferð handayfirlagningar. Prestdæmisleiðtogi setur hendur sínar á höfuð þess sem setja á í embætti, flytur bæn og veitir viðkomandi einstaklingi vald og umboð til að framkvæma skyldur embættisins og veitir persónulega blessun.