Á þessum páskum eru meðlimir Kirkju Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu hvattir til að koma með vini, fjölskyldu og samferðafólk á klukkustundar tilbeiðslusamkomu á pálmasunnudegi í kapellu heimasafnaðar þeirra, 29. mars 2026. Í næstu viku (4.–5. apríl) er öllum boðið að horfa á aðalráðstefnu til að fagna páskum og upprisu Jesú Krists.
Boðið kemur í lok myndbands, þar sem hver meðlimur Æðsta forsætisráðsins gefur stuttan vitnisburð um Jesú Krist og elsku hans til okkar. Myndbandið og einstakir vitnisburðir þeirra eru hér að neðan.
D. Todd Christofferson forseti
„Himneskur faðir elskar okkur fullkomlega. Vegna þessarar elsku ,gaf hann [eingetinn son] sinn … [svo við gætum] öðlast eilíft líf‘. Þegar við leggjum áherslu á líf, þjónustu og upprisu Jesú Krists þessa páska, þá skulum við minnast þess að hann er fullkominn málsvari okkar og lausnari. Vegna friðþægingarfórnar hans, getum við upplifað ódauðleika og eilíft líf héðan í frá, sem og elsku hans, frið og gleði nú.“
Henry B. Eyring forseti
„Jesús Kristur rauf helsi dauðans. Þar af leiðandi munu öll börn himnesks föður rísa aftur upp í fullkomnum, upprisnum líkama sem aldrei mun deyja. Þetta örugga loforð getur snúið sorg þess að missa ástvin í von og fyllt hjörtu okkar gleðilegri eftirvæntingu eftir endurfundum. Vegna fórnar hans, munum við öll rísa upp og geta hreinsast í honum.“
Dallin H. Oaks forseti
„Þessa páska berum við vitni um að Jesús Kristur er upprisinn. Hann lifir. Hann er vegurinn. Friðþægingarfórn og upprisa Jesú Krists eru hin fullkomna staðfesting á elsku Guðs. Hann kallaði okkur vini sína og sagði: ,Enginn á meiri kærleik en þann að leggja líf sitt í sölurnar fyrir vini sína.‘ Friðþæging hans er altæk gjöf sem er möguleg fyrir elsku hans og elsku föðurins.“