Fjölskyldukvöld: Hefð í Kirkju Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu

Lærðu hvernig Síðari daga heilagir verja saman einni stund sem fjölskylda.

Fjölskyldur Síðari daga heilagra verja tíma sínum saman á vikulegum fjölskyldukvöldum.

Meðlimir Kirkju Jesú Krists trúa að Guð hafi gefið okkur fjölskyldur til að hjálpa okkur að verða að þeirri manneskju sem hann vill að við verðum.  Þeir trúa því að fjölskyldan sé vígð af Guði og að hann vilji að við séum saman með fjölskyldum okkar á himnum, jafnvel eftir að við deyjum. Þar af leiðandi er það ekki ótrúlegt að Síðari daga heilagir trúi því að tími með fjölskyldunni eigi að vera forgangsatriðið hér á jörðu.

Hvað er fjölskyldukvöld?

Síðari daga heilögum er ráðlagt að taka frá tíma, eitt kvöld í hverri viku, til að læra og leika saman sem fjölskylda. Þessi stund er kölluð fjölskyldukvöld. Fjölskyldukvöld eru hefð Síðari daga heilagra sem hefur verið við lýði í meira en eina öld (sjá “ Fjölskyldukvöld í 100 ár Liahona, apr. 2015, 80). Hefðbundið er að fjölskyldukvöld séu haldin á mánudagskvöldum, en það má halda þau hvaða kvöld vikunnar sem er.

Hvað gera fjölskyldur Síðari daga heilagra á fjölskyldukvöldi?

Fjölskyldukvöld er stund til að styrkja tengslin meðal fjölskyldumeðlima. Það er stund fyrir fjölskyldur Síðari daga heilaga til að tengjast traustari böndum.  Samverustundir fjölskyldukvölda geta verið eins einfaldar eða skipulagðar eins og fjölskyldur óska sér, en það sem er mikilvægast er verja tíma saman við að gera eitthvað ánægjulegt. Á fjölskyldukvöldum njóta margar fjölskyldur Síðari daga heilagra þess að spila spil saman, taka þátt í íþróttum, syngja, þjóna öðrum, borða hressingu og deila hæfileikum. Síðari daga heilagir trúa því að fjölskyldukvöld geti fært tilfinningu friðar, einingu og kærleika inn á heimilið.

Meðlimir Kirkju Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu eru kristnir og trúa því einnig að fjölskyldukvöld séu tími fyrir foreldra til að kenna börnum sínum um fagnaðarerindi Jesú Krists. Síðri daga heilagir trúa á kenningar Biblíunnar um að foreldrar eigi að ala börn sín upp í „aga og umvöndun Drottins“ (sjá Efesus 6:4). Viðbótarritningargrein Síðari daga heilagra kennir að foreldrar eigi að „kenna börnum sínum að biðja og ganga grandvör frammi fyrir Drottni“ (sjá K&S 68:28). Í samræmi við það, þá hefja og ljúka fjölskyldur Síðari daga heilagra fjölskyldukvöldum sínum með bæn. Á fjölskyldukvöldunum lærir fjölskyldan einnig orð Guðs í sameiningu og ræðir spurningar og áhyggjur sem fjölskyldumeðlimir gætu haft um umræðuefni fagnaðarerindisins.

Hvernig get ég lært um áætlun Guðs fyrir fjölskyldu mína?

Hefur þú áhuga á að læra meira um trú Síðari daga heilagra varðandi fjölskyldur og þrá Guðs varðandi ykkar fjölskyldu? Til að læra meira um áætlun Guðs varðandi fjölskyldur, farðu þá á komidtilkrists.org.