Öldungur Edwnur Alexander Enrique Ramos Silva er frá Síle og steig sín fyrstu skref í Íslandsferð, þegar hann var ársgamall árið 2005. Tuttugu árum síðar, 12. maí 2025, var öldungur Ramos Silva – sem nú býr á Íslandi – settur í embætti, sem fyrsti ungi þjónustutrúboðinn á Íslandi.
„Á sama hátt og fyrstu skrefin mörkuðu þroska hans á þeim tíma, er Ísland nú vettvangur hans andlega vaxtar – upphafið að vegferð hans í þjónustu,“ sagði móðir öldungs Ramos Silva, Nura Sarmiento.
Þegar öldungur Ramos Silva var 6 mánaða, sögðu læknar móður hans að hann myndi verða seinn til þroska.
„Hann myndi á endanum geta gert allt, bara hægar en aðrir,“ útskýrði Sarmiento.
Öldungur Ramos Silva var að lokum greindur með einhverfu og væga vitsmunalega fötlun. Hann sagði fyrstu heilu setningu - „Ég elska þig, mamma“ - þegar hann var 6 ára.
„Þrátt fyrir að tala ekki, hafði hann einstaka eiginleika,“ sagði Sarmiento. „Hann fylgdist alltaf með og ef hann sá bekkjarsystkini í leikskólanum sem þurftu á hjálp að halda, fór hann og aðstoðaði þau orðalaust. Hann þjónaði einfaldlega þeim sem þurftu á því að halda.“
Frá því að öldungur Ramos Silva flutti frá Síle til Íslands, árið 2019, hefur hann hafið verkefni sitt sem þjónustutrúboði.
Öldungur Ramos Silva sagði að eftir embættisísetningu sína hefur honum „liðið betur með anda Guðs“ og orðið samúðarfyllri.
Skipuleggjendur þjónustutrúboðsins, öldungur Torben Jensen og systir Lise Jensen, völdu af kostgæfni verkefni fyrir öldung Ramos Silva.
Þau sögðust hafa upplifað auðmýkt er Drottinn leiðbeindi þeim til Rauða kross Íslands og eftir að hafa hitt verslunarstjórann, fannst þeim Rauði krossinn vera hið fullkomna verkefni fyrir öldung Ramos Silva.

„Ég hitti fólk, hjálpa ferðamönnum og geri margt annað til að hjálpa,“ sagði öldungur Ramos Silva. „Þetta hefur verið mér yndisleg reynsla.“
Öldungur og systir Jensen sögðust geta skynjað elsku öldungs Ramos Silva til fagnaðarerindisins og tilhlökkun yfir því að verða trúboði.
„Öldungur Ramos Silva er dásamlegur ungur brautryðjandi sem þjónustutrúboði á Íslandi,“ sögðu þau. „Fordæmi hans mun hvetja annað ungt fólk frá Íslandi til að þjóna Drottni.“
Þrátt fyrir að gangast undir læknisfræðilegt mat, meðferðir og svefnrannsóknir að nóttu frá unga aldri, hefur öldungur Ramos Silva gott viðhorf og glaðlegt lunderni, að sögn móður hans. Í raun fékk hann viðurnefnið „Bros“ þegar hann var ársgamall.
„Kannski verður [trúboðið hans] eins og bernskuár hans,“ sagði Sarmiento. „Hann brosir og fylgist með þeim sem umhverfis eru á meðan hann þjónar og reynir að hjálpa þeim á sem bestan hátt og án þess að þurfa mörg orð.“

Öldungur Edwnur Alexander Enrique Ramos Silva þjónar hjá Rauða krossi Reykjavík, Íslandi. Öldungur Ramos Silva er fyrsti ungi þjónustutrúboðinn á Íslandi, settur í embætti 12. maí 2025. Mynd frá öldungi Torben Jensen og systur Lise Jensen, birt með leyfi Church News.


Öldungur Edwnur Alexander Enrique Ramos Silva, fyrir miðju, stendur með kennslutrúboðum Kaupmannahafnar, Danmerkur trúboðsins. Öldungur Ramos Silva er fyrsti ungi þjónustutrúboðinn á Íslandi, settur í embætti 12. maí 2025. Mynd frá öldungi Torben Jensen og systur Lise Jensen, birt með leyfi Church News.


Öldungur Edwnur Alexander Enrique Ramos Silva, fyrir miðju, stendur með fjölskyldu- og þjónustutrúboðsleiðbeinendum sínum, öldungi Torben Jensen og systur Lise Jensen. Öldungur Ramos Silva er fyrsti ungi þjónustutrúboðinn á Íslandi, settur í embætti 12. maí 2025. Mynd birt með leyfi öldungisTorbens Jensen og systur Lise Jensen, birt með leyfi Church News.
