Heimslæg trúarsamkoma Líknarfélags hvetur konur til að treysta á Jesú Krist, einblína á hann

„Við þurfum meira af Jesú Kristi,“ sagði aðalforseti Líknarfélagsins Camille N. Johnson

Frá vinstri systir J. Anette Dennis, fyrsti ráðgjafi í aðalforsætisráði Líknarfélagsins; aðalforseti Líknarfélagsins systir Camille N. Johnson; og systir Kristin M. Yee, annar ráðgjafi í aðalforsætisráði Líknarfélagsins í Ráðstefnuhöllinni í Salt Lake City, Utah.

Leiðtogar frá Kirkju Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu báru vitni um hjálpina og styrkinn sem hljótast af því að treysta og einblína á Jesú Krist, er þeir ávörpuðu yfir 8 milljónir kvenna í Líknarfélaginu um heim allan í upptekinni útsendingu sem gefin var út sunnudaginn 8. mars 2026.

„Aðstæður í heimi nútímans kalla á aukinn trúarlegan viðsnúning einstaklinga og styrkingu trúar á himneskan föður og Jesú Krist og friðþægingu hans,“ kenndi öldungur Quentin L. Cook í Tólfpostulasveitinni, sem ásamt aðalforsætisráði Líknarfélagsins, flutti boðskap sem verður miðlaður í tilefni af stofnun og starfi Líknarfélagsins þann 17. mars eða nærri afmæli þess.

„Við þurfum meira af Jesú Kristi,“ sagði aðalforseti Líknarfélagsins Camille N. Johnson „Af ljósi hans, elsku hans, von hans og læknandi, styrkjandi krafi hans.“ Tveir ráðgjafar hennar báru vitni um stöðugt ljós frelsarans og friðþægingarfórn hans í þágu allra.

Aðalforsætisráð Líknarfélags Kirkju Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu kvikmyndar hluta af heimslægri trúarsamkomu Líknarfélagsins í Ráðstefnuhöllinni í Salt Lake City, Utah. Útsendingin var gerð aðgengileg 8. mars 2026. Frá vinstri eru systir J. Anette Dennis, fyrsti ráðgjafi; Camille N. Johnson forseti; og systir Kristin M. Yee, annar ráðgjafi.

Áhrif og trú kvenna

„Vanmetið ekki kraft og mátt ástríkra og nærgætinna áhrifa ykkar á þau sem þið eigið samskipti við,“ sagði öldungur Cook. „Þið blessið marga þegar þið kappkostið að lifa kristilegu lífi.“

Hann bætti við að þrátt fyrir að konum fyndist þær stundum ófullnægjandi og árangurslausar, „sama hversu mikið þið leggið á ykkur eða hvað sem þið gerið,“ „þá er það nægjanlegt.“

Eins og áður, þá heldur andstreymið áfram á þessum „ólgutímum,“ kenndi postulinn, en Guð hefur lofað að hinir trúföstu sem „byggja á bjargi hans“ muni sigra.

Skírnarsáttmálinn er gagnlegt grundvallartriði þegar maður horfir á líf sitt og skuldbindingu við fagnaðarerindið, sagði hann. Alma, spámaður Mormónsbókar, kenndi að þörf sé á fjórum eiginleikum til að vera „óaðfinnanlegur frammi fyrir Guði:“ Vera auðmjúkur, laus við hroka og öfund og laus við að hæða eða ofsækja aðra (sjá Alma 5).

„Gæti nokkuð átt betur við um málefni okkar tíma en þessi boðskapur um dramb, öfund og ofsóknir?“ sagði hann.

„Hin mikla umræða víða um heim snýst um stundleg og dagleg efnahagsmál. Samt er afar lítil umræða um að snúa aftur til kristilegra reglna sem snúast um undirbúning til að mæta Guði og ástand anda okkar. Við þurfum að helga líf okkar og leggja meiri áherslu á andleg málefni.“

Hann lofaði trúmennsku og „óhagganlega trú kvenna á Drottin Jesú Krist“ á upphafsárum kirkjunnar og sagði: „Ég held að konur í kirkjunni í dag séu alveg jafn sterkar og trúfastar.“

„Þegar við beinum trú okkar að Jesú Kristi og höldum okkur á sáttmálsveginum, getum við náð eilífum markmiðum okkar.“ – öldungur Quentin L. Cook

Öldungur Cook sagði að lokum: „Þegar við beinum trú okkar að Jesú Kristi og höldum okkur á sáttmálsveginum, getum við náð eilífum markmiðum okkar.“

Helgar konur einblína á Jesú Krist

Johnson forseti sagði frá tveimur „heilögum“ konum sem hún þekkir sem „hafa þekkt og treyst Jesú Kristi mitt í eldi hreinsunar og mótlætis.“ Hún vitnaði síðan í sögu Gamla testamentisins um Hönnu, sem eitt sinn var óbyrja, þegar hún skildi eftir hjá prestinum son sinn, nývaninn af brjósti, sem hún hafði lengi beðist fyrir um að eignast, og helgaði hann þjónustu við Guð.

„Hanna var trúföst og lífið var enn erfitt,“ sagði Johnson forseti.

Jesús Kristur er sá sem hreinsar og fágar silfrið, útskýrði hún, og „við erum hið dýrmæta silfur, fágað og útvalið í bræðsluofni þrengingarinnar. Og eins og silfur hefur verið fágað og óhreinindin brennd burtu, þá höfum við guðlegri persónuleika, við verðum heilagar konur.“

Aðalforseti Líknarfélagsins, Camille N. Johnson, í Kirkju Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu, heimsækir meðlimi aðalráðgjafanefndar Líknarfélagsins í Ráðstefnuhöllinni í Salt Lake City, Utah, meðan á upptöku umræðumyndbanda stendur, sem birt voru af heimslægri trúarsamkomu Líknarfélagsins, 8. mars 2026.

„Meðal Líknarfélagssystra minna eru Hönnur nútímans, heilagar konur, sem jafnvel í mótlæti sínu tilbiðja í húsi Drottins, fasta, úthella sál sinni til Drottins í bæn, helga það sem Drottinn hefur blessað þær með, halda skuldbindingarnar sem þær hafa gert við hann og setja traust sitt á Drottin – á vilja hans fyrir þær og tímasetningu hans.“

„Þið getið gert það sem erfitt er með Jesú Kristi eða einsamlar. Ég er þess fullviss að þegar þið leggið hart að ykkur með Jesú Kristi, verður hið erfiða heilagt – heilagar tíðir, heilög rými, heilagar konur.“ – Camille N. Johnson forseti

Hún hélt áfram: „Við erum að upplifa jarðneska reynslu í líkömum sem eru háðir öldrun og sjúkdómum. Okkur, og öðrum, gefst það dýrðlega tækifæri að iðka sjálfræði okkar, til góðs eða ills. Svo þetta verður erfitt. Þið getið gert það sem erfitt er með Jesú Kristi eða einsamlar. Ég er þess fullviss að þegar þið leggið hart að ykkur með Jesú Kristi, verður hið erfiða heilagt – heilagar tíðir, heilög rými, heilagar konur.“

Eftir að hafa fundið líkn með Jesú Kristi, er það verk heilagra kvenna að deila andlegri líkn frelsarans með öðrum, sagði hún.

Treystið stöðugri elsku og ljósi Guðs

Treystið á elsku frelsarans, jafnvel þótt „það geti verið erfitt að skynja elsku frelsarans eða sjá ljós hans,“ kenndi systir J. Anette Dennis, fyrsti ráðgjafi í aðalforsætisráði Líknarfélagsins.

Systir J. Anette Dennis, fyrsti ráðgjafi í aðalforsætisráði Líknarfélags Kirkju Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu, heimsækir meðlimi aðalráðgjafanefndar Líknarfélagsins í Ráðstefnuhöllinni í Salt Lake City, Utah, á meðan hún tekur upp umræðumyndbönd sem birt voru af heimslægri trúarsamkomu Líknarfélagsins, 8. mars 2026.

„Ég ber mitt vitni um að ekkert getur aðskilið okkur frá elsku himnesks föður okkar og Jesú Krists!“ sagði hún. Ljós þeirra og elska til okkar eru stöðug, óbreytanleg og óhagganleg, rétt eins og ljós og hlýja sólarinnar. Við þurfum ekki að óttast að þeir hafi yfirgefið okkur, því þeir munu aldrei gera það. Það er ekki í þeirra eðli að gera það.“

Líknarfélagssystur geta hjálpað við að tryggja að konum finnst þær aldrei einar eða einangraðar, sagði hún. „Við getum hjálpað hverri annarri að skynja elsku frelsarans er við reynum að vera sameinaðar sem dætur Guðs. Tökum höndum saman, lyftum hverri annarri og göngum heim saman.“

Jarðlífið er fullt af áskorunum, erfiðleikum og missi, en „ef þið eruð trúfastar Guði, mun allur missir ykkar að lokum verða ykkur bættur,“ sagði hún og bar vitni um að himneskur faðir og frelsari ykkar munu aldrei gleyma ykkur, sama hverjar þið eruð, hvar sem þið búið, hverjar sem aðstæður ykkar eru og hver sem fortíð ykkar er.

„Fórn Jesú Krists var og er fyrir ykkur“

„Mikil elska Guðs er staðfest af hinni miskunnsömu gjöf sonar hans, Jesú Krists,“ vitnaði systir Kristin M. Yee, annar ráðgjafi í aðalforsætisráði Líknarfélagsins.

„Sáttmálar okkar tengja okkur við hann og friðþægingarkraft hans. Vegna hans getum við iðrast og breyst. Vegna hans getum við hlotið styrk og getu umfram okkar eigin. Vegna hans getum við fundið guðlegan frið og fullvissuna um að „allt muni fært til rétts vegar.““

Systir Kristin M. Yee, annar ráðgjafi í aðalforsætisráði Líknarfélags Kirkju Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu, hægjandi með meðlimum aðalráðgjafanefndar Líknarfélagsins í Ráðstefnuhöllinni í Salt Lake City, Utah, meðan á upptöku umræðumyndbanda stóð, sem birt voru af heimslægri trúarsamkomu Líknarfélagsins, 8. mars 2026.

Hún sagði frá því hvernig bæn um miskunn og hjálp hefði gert henni kleift að finna frið og líkn, eftir að erfiðar aðstæður komu henni úr jafnvægi svo henni fannst hún vanmetin.

„Systur, við skulum velja að trúa á Jesú Krist og biðja um þá hjálp sem við þörfnumst fyrir kraft friðþægingar hans,“ sagði hún. „Stundum setjum við á „sjálfstýringu,“ og trúum því almennt að Guð muni hjálpa okkur, en við biðjum hann ekki meðvitað í trú, heldur trúum því að hann geti og muni hjálpa okkur. Ég held að faðir okkar á himnum voni að þið og ég munum biðja um þá hjálp sem við þurfum af einlægu hjarta og í trú á að fórn Jesú Krists var og er fyrir ykkur.“

Gagnleg úrræði

Útsending er fáanleg á Gospel Library, broadcasts.churchofjesuschrist.org og á Youtube rásinni Living the Gospel.

Auk útsendingarinnar voru nokkur stutt umræðumyndbönd frá aðalráðgjafanefnd Líknarfélagsins birt 8. mars. Þessi myndbönd fjalla um mikilvægt efni sem ætlað er að aðstoða Líknarfélagsleiðtoga á heimasvæðum við að styðja og uppörva systurnar sem þær þjóna.

Aðalforsætisráð Líknarfélags Kirkju Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu á fundi með meðlimum aðalráðgjafanefndar Líknarfélagsins í Ráðstefnuhöllinni í Salt Lake City, Utah. Frá vinstri eru systir J. Anette Dennis, fyrsti ráðgjafi; Camille N. Johnson forseti; og systir Kristin M. Yee, annar ráðgjafi.

Efnisatriði sem tekin eru fyrir í umræðumyndböndunum eru:

  • Finna styrk og líkn í Jesú Kristi
  • Forgangsraða mörgum mikilvægum málefnum
  • Byggja upp tilfinningalega þrautseigju
  •  Vera staðfastur frammi fyrir misgjörðum, særindum eða raunum
  • Læra um guðlega skipan í fjölskyldu minni.

Hægt er að horfa á umræðumyndböndin á sama tíma og útsendinguna, eða yfir allt árið sem kennsluefni, á sunnudagsfundum Líknarfélagsins, kvennaráðstefnum, viðburðum og samkomum Líknarfélagsins og í einstaklingsnámi.

Umræðumyndbönd verða fáanleg á ChurchofJesusChrist.org og í Gospel Library.