Heimsvöxtur Kirkju Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu

Yfir 70.000 trúboðar Kirkju Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu eru starfandi víða um heim
Yfir 70.000 trúboðar Kirkju Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu eru starfandi víða um heim.

Kirkja Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu hóf starfsemi árið 1830 í Bandaríkjunum með sex meðlimi og meðlimir hennar nú eru yfir 16 milljónir um allan heim og fleiri ganga í kirkjuna á hverju ári (sjá „Heimstölfræði'). Lítum á fleiri upplýsingar um starfsemi og vöxt kirkjunnar um allan heim.

Hvað gerir Kirkja Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu?

Meðlimir kirkjunnar koma saman í yfir 30.000 safnaðarhúsum víðs vegar um heim. Söfnuðir hittast vikulega á sunnudögum í svæðiskapellum sínum til að tilbiðja Guð og læra um fagnaðarerindi hans. Kirkja Jesú Krists starfrækir líka 4.918 ættfræðisöfn í 153 löndum, þar sem bæði kirkjumeðlimir og allir aðrir geta leitað heimilda um áa sína. Frá árinu 1985 hefur kirkjan haldið úti hjálparstarfi, þar með talið aðstoð vegna náttúruhamfara og flóttamanna, í 189 löndum. Hún fjármagnar einnig og hefur forgöngu að verkefnum sem til að mynda tengjast hjólastólum og bólusetningum (Sjá „Humanitarian Aid and Welfare Services Basics: How Donations and Resources Are Used“ og „Heimstölfræði“). Menntun er líka forgangsþáttur í kirkjunni, sem starfrækir fjóra háskóla og framhaldsskóla, auk þess að hafa útskrifað yfir 407.900 nema á efri grunnskóla–aldri í trúarskólanámi fyrir unglinga.

Hvað gera trúboðar Kirkju Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu?

Vöxt Kirkju Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu má að miklu leyti rekja til starfs trúboðanna.  Trúboðar kirkju Jesú Krists eru einna sýnilegastir í útrásarverkefnum kirkjunnar. Í raun hefur kirkjan yfir 74,000 starfandi trúboða út um allan heim (Sjá „Trúboðsstarf,“)! Ef þið hafið einhvern tíma velt því fyrir ykkur hverjir trúboðarnir Kirkju Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu eru í raun, þá eru þeir almennir meðlimir kirkjunnar sem velja að nýta 1.5 til 2 ár í að kenna öðrum í sjálfboðavinnu og keppa að því að vera þjónar Jesú Krists. Megin tilgangur þeirra er að hjálpa fólki að koma til Krists með því að kenna því hið endurreista fagnaðarerindi hans. Trúboðar Kirkju Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu verja ekki bara tíma sínum í að kenna fólki um Jesú Krist heldur fylgja þeir einnig fordæmi Krists með því að verja tíma í að þjóna í samfélagi sínu.

Family kneeling to pray

Hvað eru musteri Kirkju Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu?

Auk kapellanna, sem eru notaðar fyrir reglubundna tilbeiðslu á sunnudögum, þá tilbiðja Síðari daga heilagir í musterum um allan heim. Thomas S. Monson, fyrrverandi forseti kirkjunnar, sagði við þegna Kirkju Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu: „Musterið er helgasti staður jarðar. Það er hús Drottins“ (Blessanir musterisins,“ Aðalráðstefnur, Apríl 2015).

Á umliðnum áratugum hefur musterum Kirkju Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu fjölgað svo um munar, til að koma á móts við heimslægan vöxt kirkjunnar. Um mitt árið 1981 var kirkjan einungis með 19 starfandi musteri, en nálægt lokum ársins 2000 voru þau orðin 100 (sjá Gordon B. Hinckley, “This Great Millennial Year,” Ensign, nóv. 2000, 68). Í febrúar 2017 voru 155 starfandi musteri Síðari daga heilagra á jörðu og 11 musteri í byggingu, ásamt því að tilkynnt hafði verið um 11 musteri til viðbótar, án þess að hafist hefði verið handa við byggingu þeirra. Þau 11 musteri sem voru í byggingu voru í Paris, Frakklandi; Tucson, Arisóna; Meridian, Idaho; Cedar City, Utah; Róm, Ítalíu; Concepción, Chile; Barranquilla, Kólumbíu; Kinshasa, Lýðræðislega Lýðveldinu Kongó; Durban, Suður Afríku; Fortaleza, Brasilíu; and Lissabon, Portúgal (sjá „Mormon Temples Currently Under Construction,'). Sjá má lista yfir starfandi musteri á churchofjesuschrist.org/temples.

Hvernig get ég lært meira?

Milljónir um allan heim hafa fundið frið, vináttu og svör við spurningum sínum í Kirkju Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu. Komast má að því hvernig hægt er að hitta trúboða kirkjunnar á þínu svæði með því að fara á komidtilkrists.org.