Jólasamkoma Æðsta forsætisráðsins 2018

Jólaljós í Salt Lake City

Æðsta forsætisráðið býður meðlimum og vinum kirkjunnar að fylgjast með útsendingu jólasamkomu Æðsta forsætisráðsins 2018. Hún fer fram sunnudaginn 2. desember kl. 18:00 á staðartíma í Salt Lake City.

Á þessari samkomu í Ráðstefnuhöllinni munu aðalvaldhafar og leiðandi embættismenn kirkjunnar flytja ræður um jólahátíðina. Laufskálakórinn og Sinfóníuhljómsveit musteristorgsins sjá um tónlistina.

Þeir sem óska eftir að horfa á útsendinguna í beinni útsendingu, þá gefst þess kostur á Netinu undir lds.org sunnudagskvöldið 2. desember kl. 24:00. Annars verður samkomunni sjónvarpað á ný sunnudaginn 9. desember 2018 kl. 15:00 í kirkjunni við Ásabraut 2, Garðabæ þar sem íslensk þýðing er í boði.