Kirkja Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu setur nýtt met í fjölda trúboða

Kirkja Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu setur nýtt met í fjölda trúboða
Kirkja Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu setur nýtt met í fjölda trúboða

Í Kirkju Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu þjóna nú fleiri fastatrúboðar en nokkru sinni áður í sögu kirkjunnar.

Um 88.500 fastatrúboðar þjóna víða um heim og bætir það fyrra met sem var 88.000, árið 2014. Þessi sögulegi skari trúboða samanstendur af ungum kennslu- og þjónustutrúboðum og eldri trúboðum. Aukninguna má rekja til fyrstu bylgju 18 ára systurtrúboða sem eru að hefja þjónustu sína.

Öldungur Ronald A. Rasband í Tólfpostulasveitinni er í forsæti trúboðsframkvæmdaráðsins. Hann markaði tímamótin í færslu á samfélagsmiðlum þann 14. júlí. Hann sagði þetta met endurspegla „trú og hollustu upprennandi kynslóðar lærisveina Jesú Krists“.

Áfanginn náðist þegar kirkjan opnaði 55 ný trúboð víða um heim en heildarfjöldinn er 505.

Á námskeiði fyrir nýja trúboðsleiðtoga í júní 2026, benti spámaður og forseti kirkjunnar, Dallin H. Oaks, á áframhaldandi vöxt trúboðsþjónustu í kirkjunni í heild.

Dallin H. Oaks forseti talar á námskeiði fyrir nýja trúboðsleiðtoga í Provo trúboðsskólanum í Provo, Utah, laugardaginn 20. júní 2026.
Dallin H. Oaks forseti talar á námskeiði fyrir nýja trúboðsleiðtoga í Provo trúboðsskólanum í Provo, Utah, laugardaginn 20. júní 2026.
Heimkominn trúboði heilsar vinum og vandamönnum fyrir utan flugvöllinn í Madagaskar.
Heimkominn trúboði heilsar vinum og vandamönnum fyrir utan flugvöllinn í Madagaskar.
Eldri trúboði faðmar konu í Kambódíu.
Eldri trúboði faðmar konu í Kambódíu.
Trúboðshjón á Tahítí.
Trúboðshjón á Tahítí.
Ungir systurtrúboðar kenna í Tempe, Arisóna.
Ungir systurtrúboðar kenna í Tempe, Arisóna.

„Trúboðsstarfið er að færast í nýjar hæðir,“ sagði Oaks forseti þann 20. júní. „Á komandi vikum munum við hafa fleiri trúboða en nokkru sinni áður í sögu kirkjunnar. Þvílíkur hópur til að leiða!“

Öldungur Rasband sagði að metfjöldi trúboða sem þjónaði um allan heim gerði þetta að „dásamlegum tíma til að starfa í verki Drottins“.

„Þegar trúboðar Drottins gefa hjarta sitt, mátt, huga og styrk til trúboðsþjónustu sinnar, mun Drottinn margfalda erfiði þeirra,“ sagði postulinn. „Hann mun blessa þá með styrk umfram þeirra eigin styrk og fylla líf þeirra gleði, er þeir taka þátt í hinni miklu og undursamlegu hröðun í verki Drottins.“