Meðlimum Líknarfélags Kirkju Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu, ásamt vinum og stúlkum sem verða 18 ára á árinu 2026, er boðið að taka þátt í sérstakri heimslægri útsendingu og vitnisburðarsamkomu á heimasvæði, til að fagna systralaginu sem þær deila í fagnaðarerindi Jesú Krists.
Öldungur Quentin L. Cook í Tólfpostulasveitinni mun flytja sérstakan boðskap, sem og Camille N. Johnsonforseti, systir J. Anette Dennis og systir Kristin M. Yee í aðalforsætisráði Líknarfélagsins.
Líknarfélagshópar eru hvattir til að koma saman sem deildir, greinar eða stikur þann 17. mars eða í nánd við afmælisdag stofnunar Líknarfélagsins. Staðarsamkomur geta innihaldið vitnisburðarsamkomu og ættu að hefjast og ljúka með bæn. Hin 30-40 mínútna útsending verður fáanleg til niðurhals frá 8. mars 2026.
Boðskapur frá aðalforsætisráði Líknarfélagsins
Aðalforsætisráð Líknarfélagsins hefur miðlað þeirri þrá sinni að systur hvarvetna muni taka á móti boði frelsarans um að koma til hans og hljóta líkn. Johnson forseti veitti eftirfarandi áminningu: „Það er lækning og styrkur þegar systur koma saman. Á þeim augnablikum leyfir frelsarinn okkur að skynja elsku sína í gegnum hverja aðra.”
Undirbúningur þeirra fyrir þessa útsendingu stýrist af djúpri vitund um þarfir systra hvarvetna. „Frelsarinn þekkir hjarta ykkar og aðstæður,” sagði Johnson forseti. „Við höfum skynjað elsku hans til sérhverrar ykkar.”
Systir Dennis lagði áherslu á eininguna og hvatninguna sem finna má í Líknarfélaginu: „Drottinn er með okkur þegar við snúum okkur til hans. Hann biður okkur að styðja hverja aðra og við hlökkum til að vera saman sem systur, að skynja elsku hans og hvetja hverja aðra áfram.“
Fleiri myndbandsheimildir
Auk trúarsamkomunnar, verða nokkur stutt umræðumyndbönd (2-4 mínútur hvert) með meðlimum aðalráðs Líknarfélagsins, gefin út 8. mars. Forsætisráðum Líknarfélags á svæðum er boðið að ígrunda í bænaranda hvernig hagnýta megi þessi viðbótarmyndbönd á þann hátt að það blessi og styðji systurnar sem þær þjóna.
„Við erum allar systur í verki Drottins,” sagði systir Yee. „Sérhver okkar er að læra og vaxa í náð hans. Við vonum að þessi útsending og viðbótargögn hjálpi ykkur að finna kærleika hans og vaxa í sameiningu.”
Efnisatriði sem tekin eru fyrir í umræðumyndböndunum eru:
- Finna styrk og líkn í Jesú Kristi.
- Forgangsraða mörgum mikilvægum málefnum.
- Byggja upp tilfinningalega þrautseigju.
- Vera skuldbundin og halda ró í ógn, særindum eða ógæfu.
- Læra um guðlega skipan í fjölskyldu minni.
Hægt er að horfa á umræðumyndböndin á sama tíma og útsendinguna eða yfir allt árið til ráðgjafar á sunnudagsfundum Líknarfélagsins, kvennaráðstefnum, viðburðum og samkomum Líknarfélagsins og í einstaklingsnámi.
Áhorfsleiðbeiningar
Hægt verður að hlaða útsendingunni niður eða streyma henni á https://broadcasts.churchofjesuschrist.org/í Gospel library appinu og á á YouTube rásinni Living the Gospel ,frá og með 8. mars. Umræðumyndböndin verða einnig fáanleg á ChurchofJesusChrist.org og Gospel Library.
Útsendingin og viðbótarmyndbandsefni verða tiltæk á eftirtöldum tungumálum:
Albanska, amharíska, bandarískt táknmál, bislamamál, breskt táknmál, kambódíska (kmer), sebúanó, kantónsku, kínversku, tékkneska, danska, hollenska, enska, eistneska, fídjíeyska, finnska, franska, haití – kreólska, ungverska, íslenska, indónesíska, ítalska, japanska, kíribatímál, kóreska, lettneska, litáíska, malagasíska, mongólska, norska, portúgalska, rússneska, samóamál, spænska, svahílí, sænska, tagalog, tongíska, úkraínska, víetnamska og þýska.
Sjá útsendingaráætlunina fyrir frekari upplýsingar.