Dallin H. Oaks, forseti Æðsta forsætisráðs Kirkju Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu, tilkynnti um kallanir 10 aðalvaldhafa Sjötíu og 55 svæðisfulltrúa Sjötíu á síðdegisfundi Aðalráðstefnunnar í apríl 2019. Hann tilkynnti einnig um nýtt Aðalforsætisráð sunnudagaskólans til að koma í stað bróður Tad. R. Callister, Bróðir Devin G. Durrant og Bróðir Brian K. Ashton, sem hafa þjónað sem forsætisráð í fimm ár. Nýi forsetinn er bróðir Mark L. Pace og bróðir Milton Camargo og bróðir Jan E. Newman eru ráðgjafar hans.
Aðalvaldhafar Sjötíu þjóna í forsætisráði Sjötíu, í svæðisforsætisráðum og í öðrum störfum innan höfuðstöðvanna. Undir leiðsögn Tólfpostulasveitarinnar þá ferðast þeir víða til að funda með og kenna leiðtogum kirkjunnar, trúboðum og meðlimum kirkjunnar í söfnuðum viðkomandi svæða. Þeir hafa valdsumboð til að þjóna hvar sem er í heiminum, meðan svæðishafar Sjötíu eru yfirleitt takmarkaðir við það svæði sem þeir þjóna á.
Meðlimir Aðalforsætisráðs sunnudagaskólans eru ráðgefandi í málefnum sunnudagaskólans. Allir meðlimir kirkjunnar, 12 ára og eldri, eru hvattir til að taka þátt í kennslustundum sunnudagaskólans, sem er kenndur tvisvar sinnum í mánuði, sem hluti af reglulegum, vikulegum tilbeiðslusamkomum. Tilgangur hans er að kenna fagnaðarerindi Jesú Krists og styrkja einstaklinga og fjölskyldur.
Hér fyrir neðan eru hlekkir að upplýsingum um æviágrip hinna nýju Aðalvaldhafa Sjötíu og meðlimi Aðalforsætisráðs sunnudagaskólans, ásamt nöfnum hinna nýju svæðishafa Sjötíu
Aðalvaldhafar sjötíu
Öldungur Rubén V. Alliaud
Rubén Vicente Alliaud, 53, fæddist í Buenos Aires, Argentínu. Hann giftist Fabiana Bennett árið 1992. Þau eiga saman sex börn.
Öldungur Jorge M. Alvarado
Jorge Miguel Alvarado Pazo, 48 fæddist í Ponce, Púerto Ríkó. Hann giftist Cari Lu Rios, árið 1992. Þau eiga saman þrjú börn.
Öldungur Hans T. Boom
Hans Theodorus Boom, 55, fæddist í Amsterdam, Hollandi. Hann giftist Arienu Johonnu Broekzitter árið 1984. Þau eiga saman þrjú börn.
Öldungur L. Todd Budge
Lawrence Todd Budge, 59, fæddist í Pittsburg, Californíu. Hann giftist Lori Capener árið 1981. Þau eiga saman sex börn.
Öldungur Ricardo P. Giménez
Ricardo Patricio Giménez Salazar, 47, was fæddist í Antofagasta, Síle. Hann giftist Catherine Ivonne Carrazana Zúñiga árið 1997. Þau eiga saman tvö börn.
Öldungur Peter M. Johnson
Peter Matthew Johnson, 52, fæddist í New York borg, New York. He giftist Stephanie Lyn Chadwick árið 1990. Þau eiga saman fjögur börn.
Öldungur John A. McCune
John Allen McCune, 55, was fæddist í Santa Cruz, Californíu. Hann giftist Debbra Ellen Kingsbury árið 1984. Þau eiga saman fjögur börn.
Öldungur James R. Rasband
James Richard Rasband, 56, fæddist í Seattle, Washington. He giftist Mary Diane Williams árið 1984. Þau eiga saman fjögur börn.
Öldungur Benjamin M. Z. Tai
Benjamin Ming Zhe Tai, 46, fæddist í Hong Kong. Hann giftist Naomi Toma árið 1995. Þau eiga saman sex börn.
Öldungur Alan R. Walker
Alan Roy Walker, 48, fæddist í Buenos Aires, Argentínu. Hann giftist Ines Marcela Sulé árið 1993. Þau eiga eitt barn saman.
Aðalforsætisráð sunnudagaskólans
Bróðir Mark L. Pace
Bróðir Pace fæddist í Buenos Aires, Argentínu, 1. janúar, 1957. Hann giftist Anne Marie Langeland árið 1978. Þau eru foreldrar sjö barna og eiga sautján barnabörn.
Bróðir Milton Camargo
Bróðir Camargo er starfandi sem varaformaður yfir námsskrá hjá BYU- Pathway Worldwide. Hann og eiginkona hans, Patricia, eiga þrjú börn saman og þrettán barnabörn.
Bróðir Jan E. Newman
Bróðir Newman er frumkvöðull og hefur stofnað fjölda farsælla hugbúnaðarfyrirtækja. Hann og eiginkona hans, Lucia, eiga sex börn saman og átta barnabörn.
Svæðishafar Sjötíu
Solomon I. Aliche
Guillermo A. Alvarez
Daren R. Barney
Julius F. Barrientos
James H. Bekker
Kevin G. Brown
Mark S. Bryce
A. Marcos Cabral
Dunstan G. B. T. Chadambuka
Alan C. K. Cheung
Christian C. Chigbundu
Paul N. Clayton
Karim Del Valle
Hiroyuki Domon
Mernard P. Donato
Mark D. Eddy
Zachary F. Evans
Henry J. Eyring
Sapele Fa'alogo Jr.
David L. Frischknecht
John J. Gallego
Efraín R. García
Robert Gordon
Mark A. Gottfredson
Thomas Hänni
Michael J. Hess
Glenn M. Holmes
Richard S. Hutchins
Tito Ibañez
Akinori Ito
Jeremy R. Jaggi
Kelly R. Johnson
Christopher Hyunsu Kim
H. Moroni Klein
'Inoke F. Kupu
Stephen Chee Kong Lai
Victor D. Lattaro
Tarmo Lepp
Itzcoatl Lozano
Kevin J. Lythgoe
Edgar P. Montes
S. Ephraim Msane
Luiz C. D. Queiroz
Ifanomezana Rasolondraibe
Eduardo D. Resek
Tomás G. Román
Ramon E. Sarmiento
Jonathan S. Schmitt
Vai Sikahema
Denelson Silva
Luis Spina
Carlos G. Süffert
Voi R. Taeoalii
Sergio R. Vargas
Markus Zarse
Eftirfarandi svæðishafar Sjötíu hafa verið leystir frá störfum:
Victorino A. Babida
L. Todd Budge
Peter M. Johnson
John A. McCune
Mark L. Pace
James R. Rasband
Benjamin M. Z. Tai



















