Kirkja Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu hefur birt nýja ljósmynd af Æðsta forsætisráðinu og Tólfpostulasveitinni, ásamt mynd af sveitinni. Myndirnar, sem teknar voru í stjórnsýslubyggingu kirkjunnar 4. mars 2026, sýna öldung Clark G. Gilbert, sem var kallaður sem postuli miðvikudaginn 11. febrúar 2026, í kjölfar andláts Jeffreys R. Holland forseta.
„Postuli“ var nafnbótin sem Jesús gaf hinum tólf sem hann útvaldi sem nánustu lærisveina sína. Postuli er sérstakt vitni Jesú Krists. Til forna kallaði Jesús Kristur postula sína og sendi þá út sem fulltrúa sína. Postular okkar tíma eru líka kallaðir til að breiða út fagnaðarerindi Jesú Krists um allan heim. Tólfpostulasveitin er næst æðsta leiðtogaráð Kirkju Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu (Æðsta forsætisráðið er það æðsta).