Nýir aldurshópar Stúlknafélagsins leggja áherslu á trú, von og ljós

Bréf frá Æðsta forsætisráðinu útskýrir hvernig nýju nöfnin endurspegla guðlega sjálfsmynd, andlegan styrk og framþróun

Bréf frá Æðsta forsætisráðinu útskýrir hvernig nýju nöfnin endurspegla guðlega sjálfsmynd, andlegan styrk og framþróun

Æðsta forsætisráð Kirkju Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu hefur tilkynnt breytingar á aldurshópanöfnum stúlkna. Tilgangur hinna nýju nafna er að „hjálpa stúlkunum að skilja guðlegt hlutverk sitt í verki Guðs, að standa fyrir andlega reisn sína sem ástkærar dætur hans, og undirstrika framþróun þeirra.“

Nýju aldurshópanöfnin eru eftirfarandi:

  • Boðberar trúar (stúlkur að verða 12 eða 13 ára)

Sú sem byggir upp trú, hjálpar við að byggja upp ríki Guðs með trú sinni á Krist, staðföstu vitni og verkum sem lyfta og hvetja aðra (sjá Efesusbréfið 2:20).

  • Boðberar vonar (stúlkur sem verða 14 eða 15 ára)

Sú sem er boðberi vonar, flytur hinum mæddu vonarboðskap Krists, flytur frið, huggar og lyftir hjörtum með krafti andans (sjá Mósía 18:8–9).

  • Boðberar ljóss (stúlkur sem eru að verða 16 ára eða eldri)

Sú sem er boðberi ljóss, reiðir sig á guðlega leiðsögn og sækir styrk sinn frá sáttmálum, er hún leitar að, safnar saman og endurspeglar ljósi Guðs (sjá Kenning og sáttmálar 50:24).

Sjá opinbert bréf frá Æðsta forsætisráðinu.

Efni til að miðla til samfélagsmiðla

Emily Belle Freeman, aðalforseti Stúlknafélagsins, heimsótti ráðstefnuna Til styrktar ungmennum (TSU) á Tahítí í lok árs 2025. Þegar stúlkurnar á svæðinu sungu „Sem systur í Síon,“ staðfestist hinn andlegi kraftur að baki nafnanna enn og aftur. Leiðtogi Stúlknafélagsins sá hvernig hvert vers sálmsins endurspeglaði tilgang hvers aldurshóps — fyrst boðbera trúar, síðan boðbera vonar og loks, í þriðja versi boðberar ljóss.

„Þegar stúlkurnar sungu, var ég innblásinn til að hugsa um þessar stúlkur sem héldu sáttmála sína, með þann tilgang og hlutverk að efla trú, miðla von og safna saman og endurspegla ljósi um allan heim,“ sagði Freeman forseti. „Mér vöknaði um augu þegar mér varð ljóst að andinn hafði leitt þetta ferli allan tímann og innblásið nöfn trúar, vonar og ljóss, sem myndu hjálpa dætrum Guðs að lifa sem lærisveinar Krists og búa þær undir að ganga í systralag kærleikans alla ævi — sem er Líknarfélagið.“

Bréf Æðsta forsætisráðsins hvetur staðarleiðtoga til að leita innblásturs í bænaranda við að koma skipulagi á stúlkur í söfnuðum sínum fyrir kennslu og viðburðið. Þegar það á við, geta mismunandi aldurshópar komið saman. Sama hvernig stúlkurnar safnast saman, þá verða þær áfram auðkenndar með aldurshópsnöfnum og hver aldurshópur hefur sinn eigin forseta. Þegar hægt er, eru einn eða tveir ráðgjafar og ritari kallaðir til að styðja hvern forseta.

„Það er von okkar,“ sagði Æðsta forsætisráðið að lokum, „að þessi aldurshópanöfn og reglurnar sem þau kenna muni hjálpa stúlkunum að verða lærisveinar Jesú Krists til æviloka, undir það búnar að taka þátt í hinu mikla verki Líknarfélagsins.“

Meðlimir eru hvattir til að byrja að nota þessi nöfn þegar í stað. Stúlknafélag deildar mun breyta skipulagi námsbekkja yfir í aldurshópaskipan 1. júní 2026. Þetta gefur staðarleiðtogum tíma til að gera breytingar á aldurshópaforsætisráðum, ef þörf þykir.

Sjá svör við algengum spurningum hér að neðan.

Algengar spurningar

Hvenær koma breytingar á aldurshópanöfnum Stúlknafélagsins til framkvæmda?

Meðlimir eru hvattir til að byrja að nota þessi nýju aldurshópanöfn þegar í stað. Úrræði leiðtoga og ritara (ÚLR) verður uppfært 1. júní 2026 til að hafa þar með hina nýju aldurshópa Stúlknafélagsins. Á þeim tíma munu allar stúlkur sjálfkrafa raðast í aldurshóp miðað við aldur þeirra árið 2026. Þá verður hægt að úthluta forsætisráðum fyrir aldurshópana í ÚLR. Í deild eða grein með fáum stúlkum, geta aldurshópar komið saman til fræðslu og viðburða.

Þarf að leysa af starfandi forsætisráð námsbekkja og kalla þau aftur?

Ef allir meðlimir núverandi forsætisráðs námsbekkjar verða í sama aldurshópi, þarf ekki að leysa þá af og kalla þá aftur. Deildarritari mun þó þurfa að endurúthluta köllunum í ÚLR þann 1. júní 2026. Ef bekkjarforsætisráð verða ekki að aldurshópsforsætisráðum, ætti meðlimur biskupsráðs að leysa þau formlega af og kalla ný forsætisráð.

Ef þörf er á nýjum forsætisráðum, getur biskupsráðið byrjað að kalla stúlkur til þjónustu núna. Einnig er hægt að styðja forsætisráðin og setja þau í embætti núna, en deildarritari mun þurfa að bíða með að úthluta köllunum í ÚLR þar til 1. júní 2026 eða síðar.

Hver er munurinn á aldurshópi og námsbekk?

Eins og er, starfa biskupsráð og fullorðnir leiðtogar Stúlknafélagsins saman að því að skipuleggja stúlkur í einn námsbekk eða fleiri. Nú þegar tekur gildi að þrír aldurshópar skulu skipaðir eftir aldri hverrar stúlku á árinu: Boðberar trúar (12–13 ára), Boðberar vonar (14–15 ára) og Boðberar ljóss (16 ára eða eldri).

Getum við fært stúlkur í námsbekki á sama hátt og við höfum gert undanfarin sex ár?

Nei. Hver aldurshópur er aðskilinn. Biskupsráð og fullorðnir leiðtogar Stúlknafélagsins ákveða þó af kostgæfni hvernig skipuleggja skuli stúlkurnar fyrir fræðslu og viðburði. Þegar þörf er á, geta aldurshópar komið saman. Hver aldurshópur ætti áfram að hafa forsætisráð. Þegar fleiri en einn hópur kemur saman, vinna forsætisráðin saman að því að skipuleggja og hafa samkomur og viðburði á sunnudögum.

Hvað ef það eru fáar stúlkur í deildinni okkar?

Hver aldurshópur stúlkna ætti að hafa forseta. Ef t.d. tvær stúlkur eru ekki í sama aldurshópi í deildinni, myndu þær hvor um sig þjóna sem forsetar síns aldurshóps. Þar sem það er hægt, ættu einn eða tveir ráðgjafar og ritari að þjóna með hverjum forseta.

Hvað ef það eru margar stúlkur í deildinni okkar?

Ef biskupsráð og fullorðnir leiðtogar Stúlknafélagsins ákveða að of margar stúlkur séu í sama aldurshópi, er þeim heimilt að skipta aldurshópnum. Hver hópur ætti að hafa sitt eigið forsætisráð.

Hver sækir ungmennaráðsfund deildar?

Forseti hvers aldurshóps sækir ungmennaráðsfundi deildar.

Hvernig eru fullorðnir leiðtogar úthlutaðir aldurshópum?

Stúlknafélagsforseti ber ábyrgð á Boðberum ljóss (16 ára og eldri). Fyrsti ráðgjafi hennar ber ábyrgð á Boðberum vonar (14–15 ára). Annar ráðgjafi hennar ber ábyrgð á Boðberum trúar (12–13 ára). Þegar þörf er á, er hægt að kalla til leiðbeinendur og úthluta þeim ákveðnum aldurshóp.

Hvernig verður aldurshópaskipt á hverju ári?

Stúlkur verða Boðberar trúar í byrjun janúar þess árs sem þær verða 12 ára, Boðberar vonar frá og með janúar þess árs sem þær verða 14 ára og Boðberar ljóss frá og með janúar þess árs sem þær verða 16 ára.