Kirkja Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu hefur gefið út leiðarvísi innleiðingar til að aðstoða meðlimi og leiðtoga við að búa sig undir breytingarnar á bekkjarskipulagi sunnudagaskólans, sem taka munu gildi 6. september 2026.
Breytingarnar sem Æðsta forsætisráðið kynnti 30. mars 2026, samastanda af 25 mínútna sunnudagaskóla, Líknarfélagsfundi, öldungarsveitarfundi, Stúlknafélagsfundi og Aronsprestdæmisfundi og kennslu fyrir ungmenni. Einnig var námsefni kynnt sem byggist á uppfærðum „Til styrktar ungmennum: Leiðarvísir að ákvarðanatökum.“
Lesið grein á Newsroom tengda þessu efni
Breytingar á fundardagskrá á sunnudögum
Í leiðarvísinum segir: „Þetta er meira en skipulagsbreyting; þetta er boð til gleðilegrar, kristsmiðaðrar tilbeiðslu – endurnýjunar á heimilismiðaðri, kirkjustuddri fyrirmynd okkar og styrkjandi sáttmálsaðild.“
„Þetta er meira en skipulagsbreyting; þetta er boð til gleðilegrar, kristsmiðaðrar tilbeiðslu – endurnýjunar á heimilismiðaðri, kirkjustuddri fyrirmynd okkar og styrkjandi sáttmálsaðild.“ — Leiðarvísir innleiðingar
Skoðið eða hlaðið niður leiðarvísi innleiðingar á PDF formi núna.
Fyrsta vikan í ágúst
Til viðbótar við leiðarvísi innleiðingar, verða fræðslumyndbönd og fleiri úrræði tiltæk fyrstu vikuna í ágúst á Sunday.ChurchofJesusChrist.org
Tungumál
Leiðarvísirinn má fá á cebuano, kínversku–einfaldaðri, kínversku–hefðbundinni, tékknesku, dönsku, hollensku, ensku, eistnesku, finnsku, frönsku, þýsku, ungversku, íslensku, latnesku, litháensku, ítölsku, japönsku, kóreysku norsku, portúgölsku (brasilískri), portúgölsku (evrópskri), rússnesku, samósku, spænsku, sænsku, tagalog, tongísku og úkraínsku.
Til að finna önnur tungumál, skal fylgja leiðbeiningunum sem finna má í leiðarvísinum og tilkynningunni sem send var á staðarleiðtoga 25. júní 2025.
Sunnudagur, 30. ágúst
Sunnudaginn 30. ágúst munu ungmenni (þar á meðal Barnafélagsbörn sem verða 12 ára á árinu 2027), foreldrar þeirra og ungmennaleiðtogar ræða hluta 3 í leiðarvísi innleiðingar og læra meira um nýja námsefnið sem og hvernig nota má „leiðarvísinn Til styrktar ungmennum“ og tímaritið. Fjölskyldur og leiðtogar geta fengið áskrift að prentaðri útgáfu tímaritsins Til styrktar ungmennum á magazines.ChurchofJesusChrist.org eða nálgast hana í Gospel Library.
Fullorðnir munu mæta á fund fimmta sunnudags og Barnafélagið mun fylgja venjubundinni dagskrá.
Sunnudagur, 6. september
Ungmenni og fullorðnir munu sækja sunnudagaskóla (25 mínútur) og horfa á tvö myndbönd: „Sunnudagaskóli“ og „Hvíldardagurinn og sakramentissamkoma.“ Eftir myndböndin, munu þau ræða hluta 1, 2 og 4 í leiðarvísinum.
Fullorðnir munu mæta á fundi Líknarfélags eða öldungasveitar (25 mínútur), horfa á myndbandið „Líknarfélagið og öldungarsveitir“ og ræða síðan hluta 5 í leiðarvísi innleiðingar.
Eftir að hafa rætt breytingarnar vikunni áður, munu ungmennin byrja á nýja námsefninu.
Barnafélagið mun fylgja sinni hefðbundnu dagskrá, sem stendur nú yfir í 55 mínútur.