Páskamyndband hvetur alla til að finna ‚meiri kærleik‘ með Jesú Kristi

Kirkja Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu hefur gefið út nýtt myndband til að hjálpa okkur að fagna páskunum, sem sýnir hinn ‚meiri kærleik‘ sem finna má fyrir milligöngu frelsarans. Myndbandið sýnir síðustu vikuna í lífi Jesú – sigurinnreið hans í Jerúsalem, þjáningar hans í Getsemanegarðinum, krossfestingu hans og síðan gleðilega upprisu hans – og merkingu þessa fyrir sérhvert okkar.

„Enginn á meiri kærleik en þann að leggja líf sitt í sölurnar fyrir vini sína“ (Jóhannes 15:13).

Til að læra meira um hann og elsku hans til ykkar, horfið þá á myndbandið hér að neðan.

Þessa páska bjóðum við öllum að miðla þessu andríka myndbandi og miðla elsku Jesú Krists á netinu með #GreaterLove.