Dallin H. Oaksspámaður og forsetiKirkju Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu hvatti meðlimi til að sýna hina hreinu ást Krists í öllum samskiptum þeirra, sem hluta af fjölbreyttum boðskap sem fluttur var þessa páska- og aðalráðstefnuhelgi.
Hann sagði: „Við skulum sem fylgjendur Krists fylgja honum með því að forðast þrætur og nota tungumál og aðferðir friðflytjenda,“ sagði hann. „Forðumst vægðarlausa og hatursfulla hluti í fjölskyldum okkar og í öðrum persónulegum samböndum. Við skulum leitast við að vera heilög eins og frelsari okkar er.“
Oaks forseti opnaði heimsráðstefnuna laugardagsmorguninn 4. apríl 2026 og vísaði til hátíðarsamkomunnar til að styðja hið nýja Æðsta forsætisráð sem „afar [mikilvægs]“ viðburðar.
„Ég er þakklátur fyrir að vera meðal þeirra hvers leiðtogakallanir eru formlega viðurkenndar á þennan hátt,“ sagði Oaks forseti. Hann lét í ljós þakklæti fyrir samþykki kirkjumeðlima, bænir, stuðning og þjónustu við aðra.
„Á þessum páskum staðfesti ég vitnisburð okkar um hinn upprisna Drottin og viðurkenni að hann er höfuð þessarar kirkju.“ sagði hann.
Trú á „bókstaflega, upprisu allra“ breytir heildarsýninni á jarðlífið, sagði hann sunnudagsmorguninn 5. apríl. Þessi trú veitir styrk, yfirsýn og hugrekki þegar staðið er frammi fyrir líkamlegum annmörkum og áskorunum jarðlífsins, svo sem dauðanum.
Þegar einstaklingar keppa að því að lifa verðuglega til að mæta Kristi, þá mun „það hjálpa okkur að lifa saman í kærleika í þessu lífi og vænta gleðifundar og sameiningar í því næsta.
Öfugt við hina „eitruðu“ menningu fjandskapar í garð andstæðinga okkar tíma, hvatti Oaks forseti meðlimi til að fylgja kenningum frelsarans um að „elska Guð og náungann“ og „elska óvini sína.“
„Í dag gætum við sagt að okkur sé boðið að elska andstæðinga okkar,“ sagði hann.
„Sem fylgjendur Krists ættum við að leitast við að lifa í friði og kærleika með öðrum börnum Guðs, sem hafa ekki sömu lífsgildi og við og hafa ekki þær sáttmálsskyldur sem við höfum tekið okkur á hendur,“ sagði hann. „Í lýðræðislegri ríkisstjórn ættum við að leita ,sanngirni fyrir alla.‘ Í ótal aðstæðum víkur tortryggni ókunnugra eða jafnvel fjandskapur fyrir vináttu eða jafnvel elsku þegar ávextir persónulegra samskipta eru gagnkvæm virðing.“
Síðari daga heilagir geta fylgt fordæmi Krists um að velja að elska aðra, jafnvel þótt aðrir sýni okkur litla sem enga elsku, sagði Oaks forseti.
„Friðflytjendur! Hve það myndi breyta heiminum ef fylgjendur Krists myndu sleppa óvægnum og særandi orðum í öllum samskiptum sínum,“ sagði hann og miðlaði dæmum um hvernig hægt væri að vera friðflytjandi.
Við lok ráðstefnunnar á sunnudagssíðdegi sagði spámaðurinn: „Andi Drottins hefur innblásið okkur öll að helga tilbeiðslu okkar, beina lærdómi okkar og samræma vitnisburði okkar að kenningum Drottins Jesú Krists og áætlunar föður hans um eilífa aukningu okkar og gleði.“
Hann bar vitni: „Jesús Kristur er vissulega vegur friðar í þessum heimi og eilífs lífs í komanda heimi.Hann þekkir og elskar hvert okkar fullkomlega og býður okkur að ganga með sér, vera í honum og fylgja fordæmi sínu um að þjóna öðrum, hverju fyrir sig í kærleika og elsku.Við höfum verið minnt á hið mikilvæga hlutverk hjónabandsins og fjölskyldunnar í áætlun himnesks föður um eilíf örlög barna hans.Megum við sýna hina hreinu ást Krists í fjölskyldum okkar, samfélögum og í öllum samskiptum okkar við börn Guðs.“
Oaks forseti lauk með boði sínu um að læra og ígrunda ráðstefnuboðskapinn í bænaranda og fylgja reglum hans í trú. Þegar við varðveitum og lifum eftir kenninum þessarar ráðstefnu mun Drottinn halda áfram að kenna og innblása okkur með persónulegri opinberun og leiðsögn,“ sagði hann.