Í sunnudagsmorgunhluta 190. aðalráðstefnu Kirkju Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu, kynnti Russell M. Nelson forseti yfirlýsingu til að heiðra 200 ára afmæli Fyrstu sýnar Josephs Smith.
Hún heitir „Endurreisn fyllingar fagnaðarerindis Jesú Krists: Tveggja alda yfirlýsing til heimsins,“ og tilgreinir megin trúarkenningar Síðari daga heilagra. Hún greinir meðal annars frá drottinsvaldi Jesú Krists til hjálpræðis, guðleika opinberana Josephs Smith og Mormónsbókar, hinu sérstæða ætlunarverki Kirkju Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu og viðvarandi eðli endurreisnarinnar, sem hófst með Fyrstu sýn Josephs Smith, er Guðdómurinn birtist árið 1820. Yfirlýsingin býður fólki hvarvetna að komast að því af eigin raun að Guð talar og að þessi endurreisn sannleikans eigi sér stað, því til hjálpar við að búa sig undir síðari komu Jesú Krists.
Þetta er sjötta yfirlýsingin sem kirkjan hefur gefið út. Hinar voru gefnar út árin 1841 (einungis til hinna heilögu), 1845, 1865, 1980 og 1995. Yfirlýsingunni árið 1980 svipar mest til þeirrar sem Nelson forseti kynnti á sunnudaginn.
Lesið alla yfirlýsinguna á 12 tungumálum hér. Hún verður brátt tiltæk á fleiri tungumálum, þar með talið á íslensku.