Æðsta forsætisráð Kirkju Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu hefur tilkynnt að á pálmasunnudag — 29. mars 2026 — muni staðarsöfnuðir einungis hafa einnar klukkustundar sakramentissamkomu, nema stikuráðstefna hafi þegar verið skipulögð. Ástæðan er árleg útsending frá aðalráðstefnu kirkjunnar sem fellur á páskahelgina.
Í bréfi sem Æðsta forsætisráðið miðlaði staðarleiðtogum fimmtudaginn 22. janúar um að fagna þessum páskum, er minnst á að pálmasunnudagur, páskar og aðalráðstefna væru „dásamleg tækifæri” til að minnast friðþægingar og upprisu frelsarans með tónlist og innblásnum boðskap.
„Fyrir næstum tvö þúsund árum , markaði pálmasunnudagur upphaf síðustu viku jarðneskrar þjónustu Jesú Krists. Þetta var mikilvægasta vika mannkynssögunnar,” sagði öldungur Ronald A. Rasband í Tólfpostulasveitinni á aðalráðstefnu í apríl 2023.
Hann hélt áfram: „Það sem hófst sem boðun Jesú sem hins fyrirheitna Messíasar í sigurgöngu hans inn í Jerúsalem, lauk með krossfestingu hans og upprisu. Að guðlegri skipan, batt friðþægingarfórn hans enda á jarðneska þjónustu hans, sem gerði okkur kleift að lifa með himneskum föður okkar um eilífð.”
Helgina þar á eftir er fólki um allan heim boðið að safnast saman á 196. fyrri árlegu aðalráðstefnu kirkjunnar 4.–5. apríl 2026. Útsendingunni verður streymt frá Ráðstefnuhöllinni í Salt Lake City í Utah, á mörgum tungumálum.
Á páskunum leggur kirkja Jesú Krists áherslu á að skilja betur og tileinka sér „meiri kærleika” Jesú Krists, eins og kemur fram í Jóhannesi 15:13 í Nýja testamentinu: „Enginn á meiri kærleik en þann að leggja líf sitt í sölurnar fyrir vini sína.”
„Af páskagleði syngjum við: ‚Kristur dauðans valdið vann. veröld leysti' úr fjötrum hann.‘ Upprisa Krists frelsar okkur frá dauða, frá breyskleika tímans og líkamlegum ófullkomleika. Friðþæging Jesú Krists endurreisir okkur líka andlega,” sagði öldungur Gerrit W. Gong í Tólfpostulasveitinni á aðalráðstefnu í apríl 2025. „Blóð draup úr hverri svitaholu, segja mætti að hann hafi grátið blóði, til að veita okkur frelsi frá synd og aðskilnaði. Hann sameinar okkur, heil og heilög, hvert öðru og Guði. Jesús Kristur endurreisir alla góða hluti ríkulega – ekki aðeins það sem var heldur einnig það sem getur orðið.”