Ungmennum víða um heim boðið að búa sig undir nýtt námsefni

Ný úrræði munu hjálpa ungmennum að efla trú sína og styrkja ævilangt hlutverk lærisveinsins í Jesú Kristi

Ný úrræði munu hjálpa ungmennum að efla trú sína og styrkja ævilangt hlutverk lærisveinsins í Jesú Kristi

Í framhaldi af nýlegri tilkynningu þann 30. mars, um breytingar á námsefni sunnudagsfunda og námsefnis ungmenna, býður Kirkja Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu ungmennum, foreldrum og leiðtogum að byrja nú að undirbúa sig fyrir breytingar sem taka gildi 6. september 2026.

Miðlægt í þessum breytingum er hið uppfærða „Til styrktar ungmennum: Leiðarvísir að ákvarðanatökum“ — kristimiðað námsefni byggt á meginreglum sem verður námsefni fyrir námsbekki Stúlknafélagsins og Aronsprestdæmissveitir, frá og með haustinu.

Kirkjuleiðtogar lögðu áherslu á að breytingar þessar væru gerðar til að styrkja ungmenni í lærisveinshlutverkinu, dýpka heimilismiðað trúarnám og stuðla að einingu er ungt fólk um heim allan lærir saman sömu reglurnar.

Mánaðarlegt lífsreglu miðað námsefni fyrir ungmenni

Hinn uppfærði leiðarvísir „Til styrktar ungmennum“ (TSU) hefur að geyma 12 kafla — einn fyrir hvern mánuð ársins — sem hver fjallar um kenningar, reglur og raunverulega hagnýtingu. Frá og með 6. september munu námsbekkir og sveitir læra einn kafla í mánuði og læra hvernig taka á ákvarðanir með frelsarann Jesú Krist að þungamiðju lífs síns.

Ungmennum er boðið að lesa allan leiðarvísinn fyrir 6. september, kynna sér kenningar hans og læra hvernig nota má hann sem ævilangt úrræði fyrir lærisveinshlutverkið og ákvarðanatökur.

Æskilegur árangur ungmenna sem læra þennan leiðarvísi, er sá að þau munu:

  1. Verða lærisveinar Jesú Krists til æviloka, með staðfastan skilning á fagnaðarerindi hans.
  2. Vera undirbúin fyrir musterisgjöfina, með dýpri skilningi á helgiathöfnum prestdæmisins og sáttmálsloforðum.
  3. Vera undirbúin fyrir trúboð, með þrá til að þjóna Drottni.
  4. Einblína á framtíðarfjölskyldu sína og skilja að hjónaband milli karls og konu er vígt af Guði og að fjölskyldan er kjarninn í áætlun föðurins.
  5. Vita að Jesús Kristur er styrkur þeirra.

Leiðarvísirinn er nú fáanlegur í safninu „Ungmenni“ í Gospel Library, og prentuð eintök berast til eininga um allan heim.

Lesið saman: Einn kafli á viku frá 3. maí

Frá og með 3. maí 2026 munu samfélagsmiðlarnir „For the Strength of Youth“ (áður „Strive to be“) bjóða upp á lestrarupplifun um allan heim. Ungmennum, fjölskyldum þeirra og leiðtogum er boðið að lesa einn kafla á viku og búa sig saman undir hið væntanlega námsefni.

Vikulegar færslur munu innihalda:

  • Lestrarboð
  • Innsýn og vitnisburði frá öðrum ungmennum
  • Hugmyndir að hagnýtingu sem hjálpa ungmennum að tileinka sér það sem þau læra

Fylgið samfélagsmiðlarásum kirkjunnar fyrir ungmenni

pic

Samfélagsmiðlar kirkjunnar sem beinast að ungmennum — áður þekktir sem Strive to Be — hafa nú fengið nafnið For the strength of Youth (@forstrengthofyouth).

Þessar rásir bjóða upp á:

  • Upplyftandi, kristilegan boðskap sem hjálpar ungmennum að dýpka trú sína og finna elsku frelsarans í daglegu lífi
  • Jákvætt, hvetjandi efni til að styrkja sjálfstraust, tilfinningu þess að tilheyra og vera lærisveinn í stuðningssamfélagi á netinu
  • Sjónarhorn ungmenna og leiðtoga um allan heim, sem hjálpa piltum og stúlkum að tengjast öðrum lærisveinum Jesú Krists heimslægt.

Foreldrum, leiðtogum og ungmennum er líka boðið að fylgja:

Umræður ungmenna, 30. ágúst 2026

Til að búa ungmenni og fjölskyldur þeirra undir nýja námsefnið, þá hefur kirkjan útnefnt sunnudaginn 30. ágúst 2026, fimmta sunnudag þess mánaðar, sem alþjóðlegan umræðudag fyrir ungmenni.

Þennan sunnudag er:

  • Ungmennum
  • foreldrum þeirra,
  • leiðtogum ungmenna og
  • börnum í Barnafélaginu sem verða 12 ára árið 2027,

boðið að koma saman í deildum sínum og greinum til að horfa á fræðslumyndbönd frá kirkjunni og ljúka með staðbundnum umræðum.

Á þessum sérstaka fimmta sunnudagsfundi verður nýja námsefnið kynnt, sýnt hvernig nota á leiðarvísinn á áhrifaríkan hátt og boðið upp á hagnýta leiðsögn um hvernig ungmenni geta tekið fullan þátt í vikulegum kennslustundum sem hefjast 6. september.

„Tilgangur hins uppfærða TSU leiðarvísis er að hjálpa ungmennum að öðlast þau verkfæri sem þau þurfa til að verða lærisveinar Jesú Krists til æviloka,“ sagði Emily Belle Freeman, aðalforseti Stúlknafélagsins. „Þegar stúlkur og piltar læra að nema, hagnýta sér og lifa eftir reglunum sem eru í leiðarvísinum, verða þau líkari Kristi.“

Tímaritið „Til styrktar ungmennum“: Nauðsynlegt fyrir vikulegar lexíur

Frá september 2026, verður námsefni til stuðnings vikulegum námsbekkjum Stúlknafélagsins og fundum Aronsprestdæmissveita prentað aftast í hvert eintak tímaritsins „Til styrktar ungmennum“.

Til að tryggja að heimilin fái þetta efni eru ungmenni, foreldrar og leiðtogar hvött til að skrá sig í gjaldfrjálsa áskrift eins fljótt og auðið er: magazines.ChurchofJesusChrist.org

Tímaritið býður einnig upp á vitnisburði, dæmi og sögur sem hjálpa ungmennum að tileinka sér reglur fagnaðarerindisins í daglegu lífi. Stafræn eintök af hverju tölublaði verða tiltæk í Gospel Library á tíunda degi fyrri mánaðar. Til að fá innsýn í septembernámskrána, smellið hér.

Búa sig undir að læra, framkvæma og verða

Þau sem vilja kynna sér leiðarvísinn fyrir 6. september, geta notað námsáætlun sem fáanleg er í Gospel Library appinu. Áætlunin gerir meðlimum kleift að fylgjast með tilbúnum köflum, setja upp tilkynningar í appinu og hlusta á hvern kafla, sem mun sjálfkrafa merkja lestur vikunnar sem lokið.

„Ævilangt lærisveinsstarf hefst á daglegri lærisveinsþjónustu,“ sagði Timothy L. Farnes, aðalforseti Piltafélagsins. „Þegar við horfum til september 2026, byrjum þá í dag að læra í TSU leiðarvísinum og þær ritningargreinarnar sem honum fylgja. Þegar þið gangið með honum, munið þið uppgötva að Jesús Kristur er styrkur ykkar. Leyfið honum að vera leiðsögumaður ykkar í öllum ákvörðunum sem þið takið.“

Frekari upplýsingum og gögnum verður áfram miðlað þegar september nálgast.