Æðsta forsætisráð Kirkju Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu gaf í dag út eftirfarandi yfirlýsingu þriðjudaginn, 8. maí 2025:
„Fyrir hönd leiðtoga og meðlima Kirkju Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu sendum við innilegar bænaóskir og kveðjur til Leós XIV páfa. Þessi mikilvægi tími kaþólsku kirkjunnar er áminning um varanlegt mikilvægi trúar fyrir fólk hvarvetna.
Sem samfylgjendur Jesú Krists, lítum við fram til áframhaldandi tækifæra til að vinna saman að því að blessa líf barna Guðs hvarvetna. Megum við kappkosta að fylgja fordæmi Jesú Krists við að annast fátæka og þurfandi, verða friðflytjendur og skapa heim þar sem trú og gæska fá blómstrað.“
Borðamynd birt með leyfi stock.adobe.com/TTstudio
Smámynd birt með leyfi stock.adobe.com/a_medvekov