Öldungur Clark G Gilbert er nýjasti meðlimur Tólfpostulasveitar Kirkju Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu. Hann var kallaður miðvikudaginn 11.febrúar 2026 og vígður fimmtudaginn 12. febrúar af Dallin H. Oaks forseta og öðrum meðlimum Æðsta forsætisráðsins og Tólfpostulasveitarinnar.
Öldungur Gilbert, 55 ára, fæddist í Oakland, Kaliforníu, og varði mestum hluta barnæsku sinnar í Phoenix, Arisóna. Hann hefur þjónað sem aðalvaldhafi Sjötíu síðan í apríl 2021 og sem framkvæmdastjóri Fræðsludeildar kirkjunnar frá ágúst á því ári.
„Þetta er stórkostlegur tími til að beina fólki að frelsaranum Jesú Kristi,“ sagði öldungur Gilbert á fimmtudag. „Þegar við gerum það, getum við fundið gleði, huggun og frið í honum. Eins og [Russell M.] Nelson forseti sagði eitt sinn: Það er miklu erfiðara að finna hamingju þar sem hún er ekki til. Við erum svo þakklát fyrir að ég hafi þessa köllun núna, að vitna um að Jesús er Kristur. Ef fólk um allan heim mun líta til hans, mun hann gera líf þess betra, innihaldsríkara og gleðiríkara. Það gerist í og fyrir frelsara okkar, Jesú Krist.“
Allt frá sínum fyrstu dögum, hefur öldungur Gilbert sagt foreldra sína hafa ræktað þá hugmynd að fagnaðarerindi Jesú Krists og menntun væru náttúrulega samtvinnuð.
Opinber mynd af öldungi Clark G. Gilbert, 2021.
Öldungur Clark. G. Gilbert og eiginkona hans, Christine, tala um hina nýju köllun hans í Tólfpostulasveitina frá Minningarbyggingu Josephs Smith á Musteristorginu í Salt Lake City, fimmtudaginn 12.febrúar 2026.
Opinber mynd af öldungi Clark G. Gilbert og eiginkonu hans, Christine, 2021.
Öldungur Clark G. Gilbert (fyrir miðju) og BYU-Idaho Alvin F. Meredith III forseti og eiginkona hans, Jennifer (vinstri), fögnuðu þegar útskriftarnemar ganga inn í BYU–Idaho miðstöðina sem hefst fimmtudaginn 19. desember 2024. Mynd eftir Reilly Cook, BYU–Idaho.
Fyrrverandi forsetar BYU-Idaho safnast saman fyrir hópmynd. Efri röð (frá vinstri til hægri): David A. Bednar (1997–2004), Henry J. Eyring (2017–2023), Clark Gilbert (2015–2017) og núverandi forseti Alvin F. Meredith. Neðri röð (vinstri til hægri): Kim B. Clark (2005–2015), Henry B. Eyring (1971–1977) og Bruce C. Hafen (1978–1985).
„Þau fengu mig aldrei til að halda að menntun og fagnaðarerindið væru aðskilin á nokkurn hátt – því meira sem maður hefur trú, því meira sem mann langar að læra og vaxa og því meira sem maður lærir og þroskast, því dýpri getur trú ykkar orðið,“ sagði hann árið 2021.
Trú hans og menntun efldist mjög á tíma hans við Brigham Young háskólann, þar sem hann útskrifaðist með BA gráðu í alþjóðasamskiptum árið 1994.
Tími hans í BYU var sérstakur, vegna þess að hann bætti við: „Í fyrsta sinn fann ég fyrir auknum styrk kirkjunnar og hann var beinlínis tengdur vexti mínum menntunarlega.“
Öldungur Gilbert hélt áfram námi sínu í Stanford háskóla (meistaragráða í austur-asískum fræðum 1995) og Harvard (doktorsgráða í viðskiptafræði 2001). Er hann gerðist kennari við Harvard, var draumur hans alltaf að kenna við BYU.
Það tækifæri gafst, þó í öðrum BYU háskóla.
Kim B. Clark, samstarfsmaður hans og lærimeistari við Harvard, sem hafði orðið forseti BYU-Idaho, bauð öldungi Gilbert og eiginkonu hans, Christine, að íhuga að koma með það sem þau höfðu að gefa til Rexburg, Idaho. Boð Clarks forseta fól í sér áskorun um að „hjálpa okkur að endurhugsa menntun kirkjunnar á heimsvísu.“
Gilbert fjölskyldan yfirgaf Harvard Business School árið 2006 og hélt til BYU-Idaho.
Starfsreynsla hins nýja postula átti rætur sínar að rekja til kennslu nemenda, stýra hinum síbreytilega heimi samskiptatækni og uppbyggingu og forystu stórra stofnana. Eftir að hafa hjálpað nemendum við BYU–Idaho í þrjú ár, sinnti hann verkefnum sem framkvæmdastjóri Deseret Digital Media (2009), forseti Deseret News (2010), forseti BYU–Idaho (2015) og fyrsti forseti alþjóðlegs netháskóla, þekktur sem BYU–Pathway Worldwide (2017) – verkefni sem hann gegndi þar til hann var kallaður til fullrar kirkjuþjónustu.
Þjónusta hans sem umsjónarmaður Fræðsludeildar kirkjunnar fólst í því að hafa yfirumsjón með BYU, BYU–Idaho, BYU–Hawaii, Ensign College, BYU – Pathway Worldwide og trúarskóla yngri og eldri deilda.
Reynsla með æskufólki Síðari daga heilagra á tíma hans í Boston, reyndist afar mikilvæg er hann átti þátt í að færa breiðari hópi lesenda menntunartækifæri sem fyrsti forseti BYU–Pathway Worldwide – nýstárlegs og andlegs menntastarfs sem kirkjan stóð að.
Hann sagði að þótt kirkjan, kenningar hennar og væntingar væru ný fyrir æskufólki Boston þá lærði hann að lykillinn að því að hjálpa þeim að vaxa væri að einblína á möguleika þeirra.
„Vöxtur þeirra í fagnaðarerindinu var stígandi en stöðugur,“ útskýrði öldungur Gilbert á aðalráðstefnu. „Í dag hafa þau þjónað í trúboði, útskrifast úr háskóla, innsiglast í musterinu og eru til fyrirmyndar í einka- og atvinnulífi.“
Þegar öldungur Gilbert ræddi við þjóðþekktan kennara um árangur BYU–Pathway fyrir nokkrum árum, útskýrði hann að ávextir námsins væru áhersla hvers nemanda á guðlega möguleika hvers nemanda. Frá upphafi árið 2009 hefur BYU–Pathway þjónað meira en 288.000 nemendum í meira en 180 löndum.
Öldungur Gilbert hefur með leiðtogastarfi sínu á sviði menntunnar lagt áherslu á að hjálpa hverjum nemanda að vaxa í Kristi. Hann kenndi að „í þessari kirkju höfum við trú á guðlegum möguleikum barna Guðs og getu okkar til að verða að eitthvað meira í Kristi.“ Hann sagði að þótt fólk hefji lífið við mismunandi aðstæður, „að í tímasetningu Drottins, þá skiptir það ekki máli hvar við byrjum, heldur skiptir mestu hvert við stefnum,“ sem var lögmál sem mótaði starf hans meðal nemenda um allan heim.
„Eitt af kraftaverkum þessarar, kirkju Drottins, er að sérhvert okkar getur orðið að einhverju meiru í Kristi,“ sagði öldungur Gilbert. „Ég þekki enga aðra stofnun sem sér meðlimum sínum fyrir fleiri tækifærum til að þjóna, gefa til baka, iðrast og verða að betra fólki. Hvort sem við byrjum við erfiðar eða ríkulegar aðstæður, þá skulum við einblína á og láta hallalínu okkar stefna til himins. Þegar við gerum það, mun Kristur lyfta okkur á hærri stað.“
Auk leiðtogahlutverka í starfi og á sviði menntunnar, þjónaði hann einnig í mörgum kirkjuköllunum, þar með talið sem fastatrúboði í Kobe trúboðinu í Japan, öldungasveitarforseti, ráðgjafi í stikuforsætisráði, biskup og svæðishafi Sjötíu.
Hann og Christine giftust í Salt Lake musterinu árið 1994. Þau eiga saman átta börn.